»  kvikmyndir  »  Ládautt yfir Næslandi
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Ládautt yfir Næslandi
Þriðjudagur, 05. október 2004

Næsland
[2]

Það er margt vel gert í Næslandi enda enginn skortur á fagmönnum sem koma að framleiðslunni. Kvikmyndatakan er flott, sviðsetningin á köflum snilld, leikararnir standa sig upp til hópa prýðilega og tónlistin er fín en samt er eitthvað að klikka þannig að eftir stendur áferðarfalleg mynd sem er ekkert sérstaklega skemmtileg og ristir ekki djúpt.

Nú efast enginn um að Friðrik Þór kann að búa til bíómyndir og það er til skjalfest svart á hvítu að handritshöfundurinn Huldar Breiðfjörð er prýðilegur rithöfundur og skemmtilegur náungi þannig að væntingarnar til Næslands voru að vonum talsverðar og vonbrigðin eru að sama skapi umtalsverð.
Eins og fyrr segir eru allir þættir framleiðslunnar í toppklassa þannig að meinið hlýtur að liggja í úrvinnslu handritsins og hvernig því er komið á filmu en þar er eins og menn hafi ekki alveg verið að tala saman eða í besta falli talað í kross. Grunnhugmyndin er góð og einhvern veginn fær maður það á tilfininguna að Næsland hefði orðið pottþétt stuttmynd en seigfljótandi framvindan og teygður lopinn gera það að verkum að hún verður langdregin og jafnvel leiðinleg á köflum þrátt fyrir að góðir sprettir séu teknir inni á milli. Þau ris gefa áhorfandanum tækifæri til að draga andann, stundum hlæja og gera sér vonir um að nú fari að draga til tíðinda. En svo gerist bara aldrei neitt sérstakt.
Lausn flækjunnar er einföld enda stórhættulegt að láta persónu kvikmyndar leggja upp í leitina að tilgangi lífsins. Svarið hlýtur alltaf að leynast í hjarta hvers og eins og því alltaf hætt við því að pælingar persónanna nái aðeins að gára yfirborðið án þess að komast nokkru sinni almennilega á kaf.
Næsland líður áfram í hlutlausum gír, ekki ósvipað Nóa albínóa, en samt var einhver ólga undir yfirborðinu hjá albínóanum sem maður finnur ekki fyrir hér þannig að í lokin yppir maður öxlum og spyr sig hvert meiningin hafi verið að fara með þessu öllu saman.


| 16:42 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff