»  kvikmyndir  »  Símtal dauðans
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Símtal dauðans
Fimmtudagur, 14. október 2004

Cellular
[3]

Vondir menn ræna vesalings Kim Basinger og koma henni fyrir á afskekktu háalofti fyrir utan bæinn. Þar kemst hún að því að illmennin ætli sér að ræna syni hennar og eiginmanni líka því að húsbóndinn hafi eitthvað í fórum sínum sem skúrkarnir vilja koma höndum yfir. Kim er skörp kona og áttar sig á því að um leið og glæpamennirnir hafa fengið það sem þeir vilja muni þeir drepa fjölskylduna.

Í örvæntingu tekst henni að hringja úr ónýtum síma og nær sambandi við Chris Evans sem leikur ungan sjálfumglaðan spjátrung sem er nýbúinn að ákveða að sanna það fyrir fyrrverandi kærustunni að hann geti verið góður gæi sem láti sér annt um aðra. Hann ákveður því að reyna að hálpa Kim í stað þess að skella umsvifalaust á.
Okkar maður keyrir svo ýmist eða hleypur eins og óður maður um borg og bý til þess að reyna að eyðileggja áform vondu kallanna. Það gengur þó frekar brösuglega enda skúrkarnir milku klókari en unglingspilturinn sem á þó eftir að sýna óvænt tilþrif.
Myndin nær ágætiskeyrslu og er vel yfir meðallagi í hasarmyndadeildinni. Spennan verður aldrei óbærileg en heldur manni við efnið auk þess sem reytingur af bröndurum flýtur með.
Inn í eltingarleikinn blandast gamalreynd, krúttleg lögga sem William H. Macy fer létt með að gera skil á sinn sjarmerandi hátt en það eru ekki síst Macy og töffarinn Jason Statham, í hlutverki aðal vonda kallsins, sem lyfta myndinni upp. Þá er heldur ekkert út á gömlu sexbombuna Kim Basinger að setja þótt það reyni ekki mikið á leikhæfileikana þegar kemur að túlkun taugaveikluðu konunnar í símanum.


| 11:50 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff