»  kvikmyndir  »  Grár fiðringur í tánum
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Grár fiðringur í tánum
Þriðjudagur, 02. nóvember 2004

Shall We Dance?
[3]

Gamli, grái sjarmörinn Richard Gere leikur hér miðaldra lögfræðing sem á góða konu, fallegt heimili og efnileg börn. Samt vantar eitthvað og hann er innantómur og leiður. Í stað þess að hella sér út í framhjáhald sem er alþekkt neyðarrúrræði karla í krísu stelst hann til þess að byrja að læra að dansa. Það er þó grái fiðringurinn sem er kveikjan að dansnáminu þar sem Gere heillast af Jennifer Lopez í hlutverki gullfallegs en angurværs danskennara með dapurlega fortíð.

Dansinn kveikir lífsneistann á ný hjá vini okkar sem tekur svo miklum breytingum að eiginkonan hans (Susan Sarandon) kemst ekki hjá því að gruna hann um framhjáhald.
Rómantíkin og ástarþráin svífur því yfir vötnum í Shall We Dance? en dramað og tilfinningarnar rista þó aldrei nógu djúpt til þess að myndin hreyfi almennilega við áhorfandanum en til þess að rómantískar gamanmyndir af þessu tagi virki fullkomlega þarf fólk að geta fundið einhvern samhljóm með persónunum og fá tækifæri til að taka þátt í gleði þeirra og sorgum af heilum hug.
Persónurnar hér eru bara ekki nógu spennandi og aðalleikararnir sýna lítil tilþrif. Gere er alltaf eins og Lopez gerir lítið annað en að myndast við að vera sæt og döpur í senn. Þá er ekki mikil tilfinning í dansatriðunum sem ættu að vera aðall bíómyndar sem fjallar um leitina að lífsgleðinni í dansi.
Þetta þýðir þó alls ekki að Shall We Dance? sé leiðinleg mynd en hún rífur sig aldrei upp yfir meðalmennskuna þó hún hafi vissulega burði til þess að vera rómó gamanmynd í toppklassa.
Skemmtilegar aukapersónur lífga verulega upp á myndina en þar fer hinn kostulegi Stanley Tucci fremstur í flokki í hlutverki kreppts vinnufélaga Gere sem sleppir sér gjörsamlega í funheitum dansi.
Shall We Dance? virkar því alveg fyrir sinn hatt en þar sem hún er endurgerð frábærrar japanskrar myndar frá árinu 1996 vekur hún enn eina ferðina upp spurninguna um endalausa tilhneigingu Hollývúddsins til að endurgera útlenda eðalframleiðslu þegar það hefur engu við frummyndirnar að bæta.


| 12:29 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff