»  kvikmyndir  »  Svik á svik ofan
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Svik á svik ofan
Þriðjudagur, 02. nóvember 2004

The Manchurian Candidate
[4]


The Manchurian Candidate er pólitískur þriller af bestu gerð og til þess að gera gott betra er myndin einnig þvottekta samsæriskenninga-mynd. Aðall slíkra mynda er auðvitað sá að sannleikurinn er hulinn þoku og þegar vel tekst til veit áhorfandinn ekkert í hvorn fótinn hann á að stíga og þarf stöðugt að efast um það sem fyrir augu hans ber á tjaldinu.
Þessir þættir ganga algerlega upp í The Manchurian Candidate og maður er alveg jafn ráðvilltur og aðalpersónan Ben Marco sem Denzel Washington leikur.

Marco fór fyrir bandarískri hersveit í Kúveit fyrir 13 árum og stendur í þeirri meiningu að einn undirmanna hans, Raymond Shaw, hafi bjargað öllum herflokknum, einn síns liðs, úr umsátri.
Shaw hefur nýtt sér hetjudáðina í pólitískum tilgangi og er kominn með annan fótinn í Hvíta húsið sem varaforsetaefni þegar Marco fær þá grillu að atburðirnir í Kuveit hafi aldrei átt sér stað og hann og herflokkurinn allur hafi verið heilaþvegnir til þess að trúa hetjusögunni um Shaw.
Rannsókn Marcos bendir til þess að stórfyrirtækið Manchurian standi á bak við heilaþvottinn og sé með samsærinu að koma sér upp fyrsta forsetanum í einkaeigu því Shaw sé handbendi fyrirtækisins þar sem það þurfi aðeins að ráða forsetann af dögum til þess að Shaw sé einráður.
Plottið er býsna flókið og maður þarf að hafa sig allan við til þess að tapa ekki þræðinum og þó athyglin sé óskipt veit maður stundum ekkert hverju maður á að trúa eða hvað maður á að halda. Þessar aðstæður geta verið með öllu óþolandi í bíó en hér á þetta fullkomlega við og það eykur til muna á spennuna að þurfa að vaða reyk í flókinni sögunni með Washington sem virkar auðvitað veikur á geði á köflum.
Leikstjórinn Jonathan Demme er auðvitað enginn byrjandi í bransanum og heldur þétt utan um allan ruglinginn og leikararnir standa sig með stakri prýði. Meryl Streep er traust í hlutverki valdasjúkrar móður frambjóðandans og Washington er sjálfum sér líkur. Jon Voigt klikkar heldur ekki í veigamiklu aukahlutverki en enginn skyggir þó á hinn stórlega vanmetna leikara Liev Schreiber (Sum of All Fears, Scream, The Hurricane) sem fer létt með hlutverk Shaws sem er heldur betur margfaldur í roðinu.


| 12:35 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff