»  kvikmyndir  »  Urrandi góð fjölskyldumynd
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Urrandi góð fjölskyldumynd
Þriðjudagur, 02. nóvember 2004

Two Brothers
[4]

Jean-Jaques Annaud sýndi og sannaði það eftirminnilega með kvikmyndinni Björninn að hann hefur lag á dýrum og kann að láta þau bera uppi heila bíómynd. Hann hefur nú endurtekið leikinn með Two Brothers en hefur skipt bjarndýrum út fyrir tígrisdýr.

Annaud segir hér fallega og einfalda sögu tveggja tígrisunga sem verða viðskila þegar veiðimaður drepur föður þeirra. Veiðimaðurinn sem hinn fjallmyndarlegi Guy Pierce leikur er samt hinn vænsti drengur og tekur annan ungann að sér á meðan hinn nýtur frelsisins ögn lengur þar til hann endar sem gæludýr. Pierce missir svo af litla vini sínum sem endar sem sirkusdýr.
Bræðurnir hittast aftur þegar þeir hafa náð fullum vexti en aðstæður endurfundanna eru þó síður en svo ánægjulegar þar sem þeim er stillt upp sem andstæðingum. Þá reynir á bróðurástina og myndin sem hefur liðið rólega áfram hingað til tekur heldur betur flugið og áhorfendur á öllum aldri komast vart hjá því að hrífast með þegar bræðurnir hefja baráttu sína fyrir lífinu og frelsinu.
Sagan er sem fyrr segir sáraeinföld og nánast barnaleg í besta skilningi þess orðs enda er Annaud ekkert að myndast við að finna upp hjólið. Hann er einfaldlega að segja fallega þroskasögu tveggja villidýra og gerir það með miklum glæsibrag.
Tígrisdýr eru með glæsilegustu skepnum merkurinnar þannig að þau fara létt með að bera myndina uppi og eru óumdeildar stjörnur myndarinnar. Þau sýna tilþrif í leik og það er ekki annað hægt en að dást að því hversu vel Annaud og liði hans hefur tekist samvinnan við dýrin. Þá spillir náttúrufegurð Indlands ekki fyrir þannig að myndin er á köflum sannkölluð veisla fyrir augað.
Saga bræðranna tveggja er hjartnæm og hlý og það er sennilega ekki hægt að lýsa henni betur en með þeim orðum að hér sé á ferðinni alvöru fjölskyldumynd af gamla skólanum.


| 12:37 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff