Mánudagur, 20. desember 2004
Ocean´s Twelve
[3]
Það þarf svo sem engan að undra að ákveðið hafi verið að snara upp framhaldi af Ocean´s Eleven sem sló hressilega í gegn árið 2001. Myndin var feykilega vel mönnuð með George Clooney, Juliu Roberts, Brad Pitt, Andy Garcia og Matt Damon í fylkingarbrjósti. Leikstjórinn Steven Soderbergh bætir svo um betur í Ocean´s Twelve og dembir Catherine Zeta-Jones í púkkið og fyrir vikið er hér saman kominn einn öflugasti stórstjörnufans sem sést hefur saman á hvíta tjaldinu í háa herrans tíð.
Það er vissulega gríðarlegur styrkur fólginn í þessari liðsskipan en hún verður um leið einn helsti veikleiki myndarinnar þar sem það reynir verulega á þanþol sögunnar að koma öllu þessu fína fólki að.
Erkitöffarinn Clooney var burðarás fyrri myndarinnar en hann dregur sig nokkuð til baka hér og eftirlætur Pitt, Damon og Zetu-Jones sviðið. Persóna Pitts er illu heilli frekar þreytandi og ýkt auk þess sem maðurinn sjálfur er stórlega ofmetinn sem leikari. Hann hefði því vel mátt vera í bakgrunninum en Damon nýtur sín hins vegar vel og persóna hans býður upp á góða spretti. Zeta Jones er svo alltaf jafn sjarmerandi og Juliu Roberts, sem er orðin ansi grá og guggin, er hreinlega vorkunn að þurfa að deila tjaldinu með Zetu sem er löðrandi í þokka.
Ræningjahópurinn úr 11 neyðist hér til að koma saman á ný til að afla fjár með ránum. Peningana á svo að nota til að greiða Andy Garcia sem gæti vel hugsað sér að drepa allt gengið fyrir ránið í fyrri myndinni. Okkar menn verða að gera strandhögg í Evrópu þar sem þeir eru of þekktir í Bandaríkjunum og við fáum því að fylgjast með þeim í ágætri Evrópureisu þar sem hinn dásamlega borg Róm leikur stórt hlutverk.
Það er ansi mörgum sögum troðið inn í þetta ferðalag þannig að söguþráðurinn verður býsna flókinn og þvældur á köflum. Þetta dregur úr spennu en þar sem bröltið á liðinu er hin besta skemmtun kemur það lítið að sök.
Ocean´s Twelve gerir meira út á grín en spennu og léttir og góðir sprettir halda manni ágætlega við efnið á milli þess sem maður getur dáðst að Róm. Það leynir sér líka ekki að leikararnir hafa skemmt sér konunglega við gerð myndarinnar og galsinn er smitandi þannig að ránin verða aukaatriði. Áherslan er á persónurnar og létt flipp sem er gott mál.
| 14:02 |