Þriðjudagur, 07. desember 2004
Íslenska sveitin
[3]
Íslenska friðargæslan í Kabúl er brilljant efniviður í heimildarmynd enda flestum hulið hvað í andskotanum Íslendingar eru að bralla í Afganistan. Það er því óhætt að segja að þeir Friðrik Guðmundsson og Kristinn Hrafnsson hafi lagt upp með skothelt efni og það eitt að Friðrik hafi fengið að elta íslensku gæsluliðana á röndum með myndavélina gerir það að verkum að enginn sem á annað borð lætur sig stríðsbrölt Íslendinga varða getur látið myndina fram hjá sér fara.
Íslenska sveitin svarar þó ekki mörgum spurningum og maður hefur það á tilfinningunni að trúin á safaríkt efnið hafi orðið til þess að það var einfaldlega rokið af stað til Kabúl með myndavélina án þess að það lægi ljóst fyrir hvert markmið myndarinnar ætti að vera.
Fókusinn á viðfangsefnið er óljós og engum einum friðargæslumanni er fylgt nógu vel eftir til að áhorfandinn fái heilsteypta mynd af störfum Íslendinganna í Afganistan.
Það er hins vegar vel hægt að skilja þá ákvörðun að leyfa sem flestum gæsluliðanna að njóta sín þar sem þeir eru hver öðrum skemmtilegri og sumir hverjir hreint út sagt frábærar persónur í heimildarmynd. Maður hlýtur samt að vona að markmið klippingarinnar hafi að einhverju leyti verið að sýna íslensku dátana í skoplegu ljósi þar sem annars eru nokkrir bjánar í byssuleik í Kabúl á vegum íslenska ríkisins.
Það hefur mikið verið rifist um það hvort fiðargæsluliðarnir séu íslenskur her og sitt sýnist hverjum. Myndin gefur engin afdráttarlaus svör og sjálfir eru gæsluliðarnir með það á kristaltæru að þeir séu eitthvað annað en hermenn. Tuðið í afturhaldskommatittunum hér heima byggi fyrst og framst á vankunnáttu um störf þeirra. Við fáum samt að sjá þá í júníformum að spóka sig með frethólka af öllum stærðum og gerðum og í mínum huga eru þeir samkvæmt orðabókarskilgreiningunni hermenn þó fáni friðsamrar þjóðar norður í ballarhafi sé saumaður í skæruliðagallann þeirra.
Íslenska sveitin er á köflum mjög smart, skemmtilega tekin en er fyrst og fremst skemmtileg heimsókn til Íslendinga í byssuleik og þeir eru vitaskuld mátulega sveitalubbalegir eins og við er að búast. Þeir tala mikið í klisjum um að vilja láta gott af sér leiða á meðan þeir fá að kynnast framandi landi og skemmtilegum byssum en maður er samt litlu nær um hver tilgangur sveitarinnar er.
Þrátt fyrir þennan augljósa galla á heimildarmynd er Íslenska sveitin þarft og skemmtilegt innlegg í umræðuna um "íslenska herinn" og tímasetningin á henni er pottþétt þar sem hún kemur í kjölfar teppafíaskósins mikla. Myndin ber þess þó greinileg merki að henni var snarað í bíó í flýti. Hljóðið er langt því frá fullunnið og ýmislegt fleira í eftirvinnslu virðist hálfklárað.
| 12:53 |