»  kvikmyndir  »  Tilbrigði við 7
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Tilbrigði við 7
Þriðjudagur, 14. desember 2004

Saw
[3]

Saw er sallafínn eðalhrollur sem kemur skemmtilega á óvart. Hún er auglýst með gamalkunnum klisjum um að hér sé á ferðinni "ein óhugnanlegasta mynd seinni ára" og að hún sé "alls ekki fyrir viðkvæma". Maður býst því hálfpartinn við að Saw sé einhver miðlungs splatter sem geri út á aflimanir, blóðsúthellingar og almennan viðbjóð. Myndin er vissulega og sem betur fer óhugguleg og á köflum miður geðsleg. Leikstjórinn James Wang missir þó aldrei tökin á viðbjóðnum og subbuskapurinn verður því aldrei yfirgengilegur.

Saw er drungaleg og ekki beint til þess fallin að auka tiltrú manns á mannkyninu en allar persónurnar eru með misóhreint mjöl í pokahorninu og virðast flestar á einhvern hátt eiga skilið að lenda í klóm brjálaða raðmorðingjans Jigsaw sem útdeilir refsingu af skáldlegu réttlæti og miskunnarleysi.
Morðinginn, morðin og framvinda sögunnar minna mikið á snilldarhryllinginn Seven og morðinginn er alltaf skrefi á undan löggunni, sem Danny Glover leikur. Morgan Freeman var í sömu sporum í Seven og komst að þeirri niðurstöðu að það væri útilokað að endirinn yrði góður. Þessi sama stemning næst feikivel í Saw.
Saw stendur Seven þó töluvert að baki, ekki síst þar sem sagan er ekki jafn vel útpæld. Plottið er ekki jafn þétt en það breytir því ekki að myndin heldur dampi og spennu til enda og er orðin það spennandi þegar endalokin nálgast að losarabragurinn á handritinu skiptir engu máli.
Það er svo sem ekkert út á leikarana í Saw að setja. Með kraftmeiri leikurum hefði myndin þó sjálfsagt rist enn dýpra en gaurar á borð við Carey Elwes og Glover spila í fyrstu deild á meðan Freeman og Kevin Spacey eru í úrvalsdeild.
Morðinginn John Doe var burðarásinn í Seven á meðan Jigsaw er veikur hlekkur í Saw. Morðin sem hann fremur eru óneitanlega smart en tilgangur hans er óljós og hann er ekki jafn beinskeyttur og markviss í hlutverki refsarans. Þetta smáatriði er manni þó ekki ofarlega í huga þar sem maður er kýldur kaldur með frábærum viðsnúningi í lokin. Endaprettur Saw er líklega óvæntasti endir sem sést hefur í bíó frá því Morgan Freeman fann hausinn á Gwyneth Paltrow í pappakassa í Seven.


| 17:09 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff