Þriðjudagur, 04. janúar 2005
Í takt við tímann
[2]
Það er ekki annað hægt en að gefa Stuðmönnum og leikstjóranum Ágústi Guðmundssynni prik fyrir kjark, þor og viðleitni fyrir að leggja í það verkefni að fylgja Með allt á hreinu, einni vinsælustu mynd íslenskrar kvikmyndasögu, eftir, rúmlega tveimur áratugum eftir að myndin sló eftirminnilega í gegn.
Í takt við tímann kynnir aðalpersónur fyrri myndarinnar til leiks á ný. Blessað fólkið er eldra og veðraðara en það var fyrir 22 árum fyrir utan Röggu Gísla sem yngist með hverju árinu sem líður. Vegur persónanna hefur ekki beint vaxið á þessum árum; Harpa Sjöfn rekur misheppnaða umboðsskrifstofu, Stinni á útfararstofuna Grænu torfuna, restin af Stuðmönnum reynir að afla sér drykkjupeninga með pöbbaspili á Spáni og rótarinn Dúddi, sem átti ódauðlegan sprett með skyggnilýsingu í Með allt á hreinu, er orðinn nýaldargúrú.
Þrátt fyrir andlegar og veraldlegar lægðir rís Frímann, aðalsprauta Stuðmanna, upp á afturlappirnar, smalar liðinu saman og etur hljómsveitinni út í keppni sem gæti komið henni á heimskortið.
Söguþráðurinn er óttaleg moðsuða, krydduð fimmaurabröndurum sem engir aðrir en Stuðmenn myndu komast upp með að gera að burðarbita heillar kvikmyndar en allt er þetta svo tengt saman í losaralega heild með misskemmtilegum tónlistarmyndböndum sem eru full fyrirferðarmikil fyrir minn smekk. Ekki síst þar sem öll lögin í myndinni eru langt frá því besta sem Stuðmenn hafa gert á löngum ferli. Hér eru fá lög líkleg til vinsælda en nokkur
afspyrnuleiðinleg.
Annars er munurinn á Með allt á hreinu og Í takt við tímann ekki jafn mikill og maður gæti haldið og Stuðmenn gera margt jafn vel og þeir gerðu árið 1982.
Búningarnir eru kostulegir sem fyrr og tækinilega séð er Í takt við tímann mun betur gerð en Með allt á hreinu. Mörg atriðin eru feykivel útfærð og Stuðmenn og ekki síst Eggert Þorleifsson, sem Dúddi, taka nokkra góða spretti. Nú var Með allt á hreinu einnig býsna losaraleg vegamynd hlaðin tónlistaratriðum en það gekk hins vegar upp fyrir 22 árum.
Stuðmenn eru auðvitað ekki svipur hjá sjón og eru ekki lengur þeir risar sem þeir voru í íslensku skemmtanalífi. Þá er tíðarandinn sem tók Með allt á hreinu tveimur höndum löngu gufaður upp og það er engin hætta á því að Í takt við tímannnái sama cult status og fyrrennarinn. Stærsti feillinn við framhaldið er þó að stjörnum fyrri myndarinnar, Hörpu Sjöfn og Stinna, er ekki gefinn nógu mikill gaumur og of mikilli filmu er spanderað í flipp og alíslenskt fönn, fönn, fönn að hætti Jakobs Magnússonar.
Stuðmenn ættu samt að geta unað nokkuð sáttir við sitt og það er óhætt að segja að þeir komist skammlaust frá því óðs manns æði að ætla að slá aftur í gegn á hvíta tjaldinu. Með allt á hreinu stendur enn ómenguð af Í takt við tímann sem ætti í flestum tilfellum að laða fram nógu mörg bros til að
fólk fyrirgefi Stuðmönnum uppátækið.
| 9:41 |