»  kvikmyndir  »  Ruddalegur gullmoli
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Ruddalegur gullmoli
Þriðjudagur, 18. janúar 2005

Old Boy
[4]

Þegar Oh Dae-Su er á fylliríi er honum rænt. Hann rankar við sér í ókunnri íbúð og kemst fljótt að því að hann er lokaður inni í snyrtilegu fangelsi. Sjónvarpið er eini tengiliður hans við umheiminn og í fréttunum kemst hann að því að eiginkona hans og dóttir hafi verið myrtar og hans sé leitað enda grunaður um verknaðinn.

Íbúðinn verður heimili Dae-Su í 15 ár en tímann notar hann til að undirbúa flótta og reyna að finna út hver það er sem hefur gert honum þennan óleik. Listinn sem hann gerir yfir óvini sína er langur en enginn virðist þó geta átt svo margt sökótt við hann að hefndin gæti falist í því að svipta hann fjölskyldunni og lífinu, án þess að drepa hann.
Dae-Su er svo skyndilega sleppt eftir 15 ár í prísundinni. Þá brýst 15 ára heift og reiði hans fram í trylltum hefndarþorsta þegar hann leitar logandi ljósi að ósýnilega fangaverðinum sínum. Honum verður fljótt ágengt í leitinni og lendir upp á kant við alls konar illþýði í einhverjum mögnuðustu slagsmálaatriðum síðari ára þar sem uppsöfnuð reiðin gefur honum ofurmannlega krafta sem maður efast einhvern veginn ekkert um að þessi undarlegi maður geti búið yfir. Old Boy er sjónrænt listaverk og það borgar sig því í raun að segja sem minnst um hana. Þetta er mynd sem maður á að upplifa. Myndatakan er brjálæðislega stílfærð og miklir fimleikar eru leiknir með tökuvélinni. Þá er þess alltaf gætt að passa upp á töffið, sem lekur nánast af hverjum ramma. Sagan sjálf er líka í meira lagi bitastæð og átakanleg en það syrtir stöðugt í álinn eftir því sem Dae-Su kemst nær óvildarmanni sínum og sameiginlegu leyndarmáli þeirra sem á rætur í æsku þeirra. Það verður ekki af Asíumönnum tekið að þeir kunna öðrum fremur að búa til svalar hasarmyndir sem eru keyrðar áfram af tilfinningum og stílfærðu ofbeldi.
Old Boy er með því besta sem hefur komið úr þessari átt lengi, hressileg tilbreyting frá hefðbundum spennumyndum. Þetta meistarastykki frá Kóreu er fantavel leikið, fullt af stílfærðum slagsmálum og krassandi ofbeldi.


| 11:02 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff