»  kvikmyndir  »  Vínrauður þráður í góðri sögu
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Vínrauður þráður í góðri sögu
Þriðjudagur, 25. janúar 2005

Sideways
[4]

Það er eitt elsta trix í bókmenntum og frásagnartækni að láta persónur leggja land undir fót og verða einhvers vísari um sjálfar sig og lífið áður en þær ná leiðarenda og fá umbun erfiðis síns í einhverju formi, til dæmis dýpri sjálfsskilningi, ást eða auðæfum.

Þeim félögum Alexander Payne og Jim Taylor hefur nú í tvígang tekist að nota þetta sígilda ferðalag sem grunn að þrælskemmtilegum bíómyndum. Fyrst sendu þeir Jack Nicholson af stað út á þjóðveginn í About Schmidt og nú eru það þeir Thomas Haden Church og Paul Giamatti sem leika miðaldra karlmenn í krísu sem þræða vínsmökkunarhéröð Kaliforníu í leit að lífsfyllingu og gleði.
Báðar þessar myndir eru skemmtilegur viðsnúningur á vegamyndaformið þar sem það er ekki keyrt hratt í þeim og bíltúrarnir eru í raun eins óspennandi og hugsast getur. Það eru kostulegar persónur og vel skrifuð samtöl sem halda myndunum gangandi og áhorfendum við efnið. Það sem gerir þetta svo enn betra í tilfelli Sideways er að þetta ferðalag er í raun hundleiðinlegt og ferðalangarnir báðir ömurlegar persónur.
Það er einhver óræð snilld fólgin í því að geta gert bráðskemmtilega gamanmynd um tvo einstaklega óaðlaðandi menn sem eiga varla inni fyrir snefil af samúð áhorfenda. Annar (Haden Church) er sjálfumglaður, egósentrískur vitleysingur en hinn (Giamatti) þunglyndur, þrasgjarn og leiðinlegur aumingi. Þessir eðalleikarar fara hins vegar létt með að gæða þessa leppalúða lífi og Giamatti fer á sínum alkunnu kostum enda er maðurinn sérfræðingur í að túlka vonlausa menn.
Rauði þráðurinn í gegnum þetta allt saman er vínsmökkunarferðin en Giamatti reynir að sækja huggun og sálarró í daður sitt við eðalvín á meðan Haden Church hugsar um það eitt að detta íða og er þá slétt sama úr hvers konar þrúgum vínið er kreist. Andstæður þessara ólíklegu vina kristallast í viðhorfum þeirra til vínsins þar sem annar á enn möguleika á að þroskast eins og gott vín á meðan hinn mun alltaf standa í stað.
Bíómyndin um þessa tvo vitleysinga er eins og eðalvín, bragðgóð, þægileg og skilur eftir sig notalega trú á það að öllu illu fylgi eitthvað gott. Þetta er gamanmynd fyrir fullorðna með góðri fyllingu og fínu eftirbragði.


| 10:27 |
komment

Fréttablaðið gefur ekki stjörnur en ég geri það hér og nota 5 stjörnu kerfi Empire. Finnst 5 betra en 4 en það hefur svigrúm til að sleppa þessum andskotan 1/2 stjörnum. Fimmta stjarnan á svo auðvitað að vera algjört spari þannig að ég gef eðalmyndum 4. 5 fá bar tótallý fokkíng brilljant myndir.

Moggin tók nýlega upp 5 stjörnu kerfi en var áður í 4. Held að DV sé með 4 en þar nota þeir líka hina frábæru hauskúpu sem segir milu meira en 0 sthörnur. Virkiolega vondar myndir (3000 Miles o Graceland) eru SKULL.

Nr. 1 | Tóti sjálfur | 2.02.2005 | 15:25:06 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff