»  kvikmyndir  »  Bíóbransinn toppar tónlistariðnaðinn
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Bíóbransinn toppar tónlistariðnaðinn
Föstudagur, 15. apríl 2005

Be Cool
[2]

Gamanmyndin Get Shorty sló hressilega í gegn árið 1995 enda hafði hún allt til að bera sem þarf að prýða góða bíómynd. Leikaraliðið var glæsilegt og í toppformi með John Travolta, í hlutverki handrukkarans Chilli Palmer, fremstan meðal jafningja.
Myndin byggði á skemmtilegri sögu meistara Elmore Leornard um Palmer sem gafst upp á glæpastarfsemi og nýtti reynslu sína úr undirheimunum til að hasla sér völl í Hollívúdd. Be Cool er framhald á Get Shorty og þegar hér er komið sögu er Palmer orðinn leiður á bíóbransanum en flækist fyrir tilviljun inn í tónlistarbransann. Þar þarf hann að taka á honum stóra sínum þar sem það eru allir glæponar í plötuútgáfu og mótstaðan því öllu harðari en í Hollívúdd.

Be Cool stendur Get Shorty nokkuð langt að baki og þar er helst við þvælt handritið að sakast. Sagan nær aldrei almennilegu flugi og spennan er í lágmarki. Þetta eru viss vonbrigði þar sem að öðru leyti er byggt á sömu formúlu; leikararnir eru hver öðrum betri og allt yfirbragð myndarinnar er jafn eitursvalt og persónurnar. Travolta er auðvitað svalastur og rennir sér blindandi í gegnum myndina og er nánast aukapersóna þar sem kostulegar aukapersónurnar skyggja á Palmer sem er samt vitaskuld kóngurinn í öllum sínum senum.
Það eru samt sem áður fyrst og fremst geggjaðar aukapersónur í meðförum frábærra leikara sem lyfta myndinni upp og bjarga henni um leið frá því að kolfalla í samanburðinum við Get Shorty. Vince Vaughn nýtur sín í botn í hlutverki nautheimsks og illa innrætts plötuútgefanda sem fylgir tískustraumum melludólga. James Woods klikkar heldur ekki í smáhlutverki og Robert Pastorelli er þrælskemmtilegur sem subbulegur leigumorðingi og það gustar af Cedric the Entertainer í hlutverki byssuglaðs rappútgefanda. Senuþjófur myndarinnar og hin raunverulega stjarna myndarinnar er samt glímutröllið The Rock (The Scorpion King, Walking Tall) en þessi meinti hæfileikalausi leikari fer á algerum kostum sem samkynhneigði lífvörðurinn Elliot Wilhelm sem sveiflar rauðri hafnaboltakylfu og dreymir um frægð í Hollívúdd.
Kletturinn er greinilega misskilinn snillingur.


| 13:51 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff