»  kvikmyndir  »  Út yfir öll mörk
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Út yfir öll mörk
Þriðjudagur, 19. apríl 2005

Ett Hål i mitt hjärta
[3]

Sænski leikstjórinn Lukas Moodysson er einn athyglisverðasti leikstjóri samtímans. Hann vakti fyrst athygli með hinni gráglettnu unglingamynd Fucking Amal og hitti svo beint í mark með hippamyndinni dásamlegu Tillsammans og hristi svo hressilega upp í fólki með Lilja 4-ever, grimmilegri lýsingu á hræðilegum örlögum ungrar rússneskrar stúlku sem er seld mansali til Svíþjóðar.

Hafi Lilja 4-ever verið grimm og erfið mynd er ekki gott að segja hvað nýjasta verk hans Ett Hål i mitt hjärta er. Moodysson er í það minnsta kominn óravegu frá Tillsammans þar sem þessi mynd er svo ljót, óvægin og yfirgengileg að það er tæpast hægt lýsa áhrifum hennar með orðum.


Moodysson dvelur hér með fjórum ógæfusömum einstaklingum í ljótri íbúð. Þrjú þeirra hafa komist að þeirri niðurstöðu að leið þeirra til frægðar og betra lifs liggi í gegnum klámiðnaðinn og þvítaka þau upp á því að gera heimagerða klámmynd í stofusófanum.
Parið Tess og Geko gera mest af því að eðla sig fyrir framan myndavélina sem ibúðareigandinn Rickard stjórnar en á meðan lokar sonur hans, Eric, sig af inn í herbergi og einangrar sig með tónlist á meðan ósóminn er tekinn upp. Allt er þetta fólk stórbæklað á sálinni af einni eða annari ástæðu og það þarf auðvitað ekki að fjölyrða um hversu ömurleg áhrif það hefur á sálarlíf Erics að alast upp við þessar aðstæður.

Hópurinn er einangraður frá umhverfinu og ógæfufólkið spanar hvert annað upp í vitleysunni og einangruninni þannig að hegðan þeirra og gjörðir fara langt út fyrir öll mörk. Moodysson er heldur ekkert að fara fínt í það að troða óhugnaðnum og skelfingunni ofan í áhorfendur og það er í raun með mestu ólíkindum hvað hann fær leikarana til að gera og maður hlýtur að spyrja sig hvort fólkið hafi komist heilt frá gerð myndarinnar.

Þetta er ein ljótasta og yfirgengilegasta mynd sem undirritaður hefur séð og það er varla hægt að mæla með henni við nokkurn mann með góðri samvisku en það breytir því ekki að þetta er stórmerkileg mynd sem hugsandi fólk ætti ekki að láta fram hjá sér fara.

Ett Hål i mitt hjärta ristir djúpt og gengur mjög nærri áhorfandanum og þessi mynd er þess eðlis að hún fylgir mani eftir löngu eftir að sýningu er lokið. Það er endalaust hægt að lesa í hana og hún verður betri og áleitnari eftir því sem frá líður. Þetta er hörð ádeila á klámiðnaðinn, raunveruleikasjónvarpsgeðveikina og frægðardrauma og það fer ekkert á milli mála að Moodysson er harður á því að klámbransinn þrýfst á eymd og ógæfu. Annars er tilgangslaust að ætla að greina þessa mynd hér. Sjón er sögu ríkari ef þið þorið.


| 12:50 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff