Föstudagur, 15. apríl 2005
The Life and Death of Peter Sellers
[3]
Breski leikarinn Peter Sellers var snillingur þegar það kom að gamanleik, það verður aldrei af honum tekið og þó að myndirnar hans eldist allar ekkert sérstaklega vel þá mun túlkun hans á seinheppna lögreglufulltrúanum Clouesau í myndunum kenndum við Bleika pardusinn og þrefaldur snilldarleikur hans í Dr. Strangelove, eftir
Stanley Kubrick, að maður tali ekki um yfirvegaðan leik í Being There, halda nafni hans sem einn besti gamanleikari síðustu aldar á lofti um ókomna tíð.
Ég man það vel hversu mér var illa brugðið í æsku þegar ég las það í slúðurdálkum dagblaðanna að Sellers væri hið mesta fól, illmenni sem væri vont við konur og börn. Hvernig mátti það vera að Clouseau, fyndnasti maður í heimi, væri vondur?
Myndin The Life and Death of Peter Sellers leitast við að svara þessari spurningu og ég get ekki verið annað en sáttur við þetta tímabæra uppgjör við eina af æskuhetjunum mínum. Okkur er að sjálfsögðu boðið upp á freudískar lausnir og getum rakið sálarkreppu leikarans til undarlegs sambands við móður sína en það sem stendur upp úr er að Sellers leit á sjálfan sig sem sálarlausar umbúðir utan um aragrúa af furðulegum persónum. Hann átti svo auðvelt með að leika af því að hann var ekkert.
Það er minnsta mál í heimi að kaupa þessa skýringu þegar maður horfir á Geoffrey Rush túlka angist Sellers með slíkum snilldar tilþrifum að maður situr agndofa eftir.
Rush vinnur nánast leiksigur í hvert skipti sem hann birtist í kvikmynd en hann hefur líklega aldrei verið betri. Hann er holdgervingur Sellers og nær meira að segja að leika Sellers í sínum frægustu hlutverkum og gefur þá fyrirmyndinni ekkert eftir.
Rush ber myndina á herðum sínum en er dyggilega studdur af frábærum aukaleikurum þar sem mest ber á John Lithgow í hlutverki Blake Edwards. Þá er Emily Watson traust sem fyrsta eiginkona Sellers og Charlize Theron er yndisleg að vanda í hlutverki Britt Ekland.
Myndin er öll afskaplega vel gerð og smekklega saman sett og þótt það þurfi að fara nokkuð hratt yfir sögu, eðli málsins samkvæmt, dregur hún upp sannfærandi mynd af Sellers og er alltaf skemmtileg þó að nóg sé af dramatík á harmrænum æviferli þessa óhamingjusama snillings.
| 18:31 |