Fimmtudagur, 05. maí 2005
Sjónvarpsþættirnir um Simpson fjölskylduna eru merkilegt fyrirbæri í menningarsögunni en þessar 25 mínútna drepfyndnu þjóðfélagsádeilur um gulskinnuðu vísitölufjölskylduna hans Hómers eru enn jafn ferskar og fyndnar nú og þær voru þegar þættirnir hófu göngu sína árið 1989.
Þetta úthald er með ólíkindum en það er meira en að segja það að halda sjónvarpsþáttum lifandi í 16 ár án þess að sýna þreytumerki. Þar fyrir utan eru þættirnir svo vel skrifaðir og útpældir að þeir fyrstu eru jafnfyndnir nú og þeir voru í upphafi.
Fimmti árgangurinn af ævintýrum Simpson fjölskyldunnar er kominn út á DVD og á, eins og allir árgangarnir, heima í hillum allra menningarheimila rétt eins og höfundarverk Þórbergs og Laxness.
Flestir eru almennt sammála um að þættirnir hafi verið í fullkomnum blóma um þetta leyti enda höfðu þeir tekið út eðlilegt þroskaskeið. Teikningarnar hafa breyst lítillega og leikararnir hafa eflst með hverjum þætti með Dan Castellaneta fremstan meðal jafninga í hlutverki andhetjunnar Hómers.
Það eru 22 þættir á þessu fjögurra diska safni og þar á meðal eru klassíkerar eins og þátturinn um rakarakvartett Hómers, Cape Feare sem stælir tryllinn Cape Fear snilldarlega þegar Sideshow Bob (í snilldartúlkun Kelsey Grammers) reynir að koma Bart fyrir kattarnef, þá fáum við líka að fylgjast með Hómer setjast á skólabekk og hrista upp í lífi nördanna á heimavistinni auk þess sem Lisa fer í femíníska herferð gegn barbiedúkkunni Malibu Stacey.
Þessi kassi er því vægast sagt eigulegur fyrir aðdáendur þáttanna sem geta horft á þættina aftur og aftur og aftur og endalaust fundið eitthvað nýtt til að hlæja að.
| 10:25 |