»  kvikmyndir  »  Ljúfsár ţroskasaga
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Ljúfsár ţroskasaga
Fimmtudagur, 26. maí 2005

Voksne mennesker
[3]

Daníel er ungur Dani sem líđur vćrukćr í gegnum lífiđ á hrađa snigilsins. Hann hefur líkt og náfrćndi sinn, Nói albínói, nánast sagt sig úr lögum viđ samfélagiđ.
Hann fer hvorki eftir skráđum né óskráđum reglum en er samt ekki svo mikill uppreisnarseggur ađ hann fari eftir eigin reglum. Hann fer einfaldlega ekki eftir reglum. Hann bara er og lćtur ţar viđ sitja.

Daníel vinnur fyrir sér međ veggjakroti á milli ţess sem hann hangir međ kunningja sínum, sem einhverra hluta vegna gengur undir nafninu Afi. Sá er vćgast sagt kostuleg persóna og tvímćlalaust skemmtilegasti kynlegi kvisturinn sem Dagur Kári töfrar fram í ţessari einföldu og ljúfsáru kvikmynd.

Voksne mennesker kemur í rökréttu framhaldi af glćsilegu byrjendaverki Dags Kára, Nói albínói, og rétt eins og ţar byggir hann frásögnina á persónum og stemmningu frekar en rökréttum og klassískum söguţrćđi. Ţessi frásagnarmáti leikur ákaflega vel í höndum Dags Kára, sem kemst áreynslulaust upp međ ađ segja sögur sínar á lágstemmdum nótum án nokkurs bćgslagangs. Ţrátt fyrir hćgaganginn missir hann ekki athygli áhorfandans og ţó ţađ gerist stundum ekki neitt í myndunum leiđist manni aldrei.

Nói albínói er samt sterkari heild en Voksne mennesker, ađallega vegna ţess ađ hér segir Dagur sögu dómara, sem fćr mál Daníels til međferđar, samhliđa meginsögunni. Dómarinn er áhugaverđ persóna, ţađ vantar ekki, en tenging hans viđ Daníel er of veik til ţess ađ hremmingar hans styrki heildarmyndina.

Ţetta eru ţó hreinir og klárir smámunir og međ lygilega skemmtilegu persónugalleríi og ţrćlfínum dönskum leikurum tekst Degi Kára ađ segja meinfyndna og lúmskt harmrćna sögu fólks sem reynir ađ skapa sér merkingarbćra tilveru í litlausum samtíma sem steypir alla í sama mót.
Hćg og brotakennd frásögn Dags Kára er í hrópandi ósamrćmi viđ hrađar klippingar og athyglisbrest MTV-kynslóđarinnar og ţađ er í raun frábćrt ađ fólk skuli enn segja sögur á eđlilegum gönguhrađa á ţessum síđustu og verstu tímum.

Persónur Dags Kára eru jafn mikiđ á skjön viđ hefđbundin gildi og frásagnarmáti hans en ţó Daníel reyni til ţrautar ađ vera eyland kemst hann ekki hjá ţví ađ fullorđnast og axla ábyrgđ. Ţađ verđur hins vegar hvorki af honum né Nóa tekiđ ađ kynlegir kvistir af ţeirra sauđahúsi gera tilverunna skemmtilegri um leiđ og Dagur Kári stimplar sig inn sem einn áhugaverđasti kvikmyndagerđarmađur Íslendinga.


| 21:19 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóđbönd

Taxi

Bloggar

Stöff