»  kvikmyndir  »  Mögnuð upprisa Leðurblökumannsins
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Mögnuð upprisa Leðurblökumannsins
Mánudagur, 27. júní 2005

Batman Begins
[4]

Leðurblökumaðurinn var afskrifaður árið 1997 þegar Joel Schumacher misbauð aðdáendum grímuklædda bófabanans sem og almennum bíógestum með myndinni Batman og Robin sem var svo slæm að líkamleg óþægindi voru meðal þeirra aukaverkana sem fylgdu því að sitja undir ósköpunum þar sem George Clooney og Arnold Schwarzenegger gerðu sig að fíflum í einni verstu bíómynd
sögunnar.

Það var almennt talið að með þessari mynd hefði Schumacher tekist að drepa Leðurblökumanninn. Eitthvað sem Jókernum, Mörgæsinni og öðrum erkióvinum Batmans hafði aldrei auðnast. Það er því óhætt að segja að leikstjórinn Christopher Nolan hafi unnið lítið kraftaverk með nýjustu mynd sinni, Batman Begins, þar sem hann reisir þennan skuggalega riddara götunnar upp frá dauðum og það besta er að hann hefur aldrei verið öflugri.

Það er deginum ljósara að Nolan, handritshöfundurinn og aðalleikarinn Christian Bale bera virðingu fyrir Batman og það eru því engin fíflalæti í gangi hérna. Miklum tíma og púðri er eytt í persónusköpun hetjunnar og að því leyti má segja að Nolan feti svipaða slóð og Tim Burton í tímamótamyndinni Batman frá árinu 1989. Þar var sett spurningarmerki við andlega heilsu hetjunnar og það sama er uppi á teningunum hér. Milljarðaerfinginn Bruce Wayne glímir við fortíðardrauga og reynir að vinna bug á sorginni sem heltók hann þegar foreldrar hans voru myrtir með því að berjast gegn glæpum í Gotham borg.

Fyrsti hluti Batman Begins segir þessa sköpunarsögu Batmans og hér sækir handritshöfundurinn markvisst í myndasögubók Franks Miller Batman: Year One og það er varla hægt að hugsa sér traustari grunn fyrir öfluga Batman mynd en einmitt þessa snilldarbók.

Efniviðurinn er líka svo safaríkur að það er töluvert liðið á myndina áður en Batman birtist í allri sinni dýrð en það er nógu mikið í gangi til að maður finni ekkert fyrir fjarveru búningsins og bílsins. Christian Bale smellpassar í hlutverkið og búninginn loksins þegar hann kemur sér í hann og hér er loksins kominn fram leikari sem ræður við báðar hliðar klofinnar persónu Bruce Wayne/Batmans. Bale toppar Michael Keaton, Val Kilmer og
George Clooney án þess að reyna á sig og gerir Batman algerlega að sínum. Hann er svo dyggilega studdur frábærum aukaleikurum en þar fer Michael Caine fremstur sem hinn hundtryggi Alfred, einkaþjónn Batmans.

Þá er Gary Oldman traustur að vanda sem Gordon, tilvonandi lögreglustjóri, og eini óspillti bandamaður Blaka innan lögreglunnar í Gotham. Morgan Freeman og Liam Neeson klikka ekki frekar en fyrri daginn og Rutger Hauer setur sinn svip á myndina í litlu hlutverki.

Nolan og samstarfsfólki hans hefur hér tekist með samstilltu átaki að bjarga einni flottustu myndasögupersónu allra tíma úr því víti sem Joel Schumacer skóp henni fyrir átta árum og þetta er svo sannarlega ný byrjum. Svona á að gera Batman myndir og okkar maður hefur aldrei verið betri og maður getur varla beðið eftir að fá að sjá meira af Bale í gervi svalasta myndasögutöffara allra tíma.


| 11:06 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff