»  kvikmyndir  »  júlí 2005
efnisflokkar

nýlegir dómar
júlí 2005

a long time ago...
Endurunnin gæsahúð
Föstudagur, 22. júlí 2005

The Amityville Horror
[3]

Ungu hjónin George og Kathy Lutz telja sig hafa himin höndum tekið þegar þau kaupa sér gamalt og risastórt einbýlishús. Þau flytja inn með þremur börnum Kathy frá fyrra hjónabandi og telja víst að þau séu nú loks að upplifa ameríska drauminn. Sá böggull fylgir þó skammrifi að ári fyrr hafði einn íbúa hússins sturlast og myrt alla fjölskyldu sína.

Hjónin komast ekki að þessu fyrr en of seint og þá hefur illur andi sem hefst við í húsinu náð tökum á George sem sýnir öll einkenni sturlunar þannig að allt útlit er fyrir að sagan muni endurtaka sig.

Það er ekki hægt að halda því fram að þetta sé frumleg hugmynd að hryllingsmynd enda er hún endurgerð samnefndrar myndar frá árinu 1979. Framleiðendur myndarinnar eru heldur ekkert að stíla inn á það að vera ferskir en þeim tekst ágætlega að poppa þessa gömlu draugasögu upp og þessi nýja mynd er mun betri en forverinn.

Öllum elstu og helstu brellum í hryllingsmyndasögunni er beitt af mikilli fagmennsku og ófá bregðuatriði ná tilætluðum árangri. Þá tekst leikstjóranum vel að skapa ókennilega stemmningu og gera illsku hússins áþreifanlega. Það spillir svo ekki fyrir að það eru börn sem lenda í eldlínunni og eru í lífsháska. Varnarleysi barnanna, sem geta sér enga björg veitt, þegar stjúpinn sturlast er útfært skemmtilega og þar ristir myndin dýpst enda er ótrúlega auðvelt að vekja ugg hjá áhorfendum með því að veitast að kjarnafjölskyldunni og leysa hana upp.

The Amityville Horror er því býsna hefðbundinn hrollur og stendur ágætlega undir þeim væntingum sem gerðar eru til mynda af þessu tagi. Eins og svo oft áður er lausn flækjunnar þó frekar ódýr og vísanir í klassíkera á boð við Halloween og The Exorcist gera fátt annað en að minna á að allt hefur þetta verið gert áður. Og þá mun betur en hér.


Stjörnustríð fyrir byrjendur
Mánudagur, 18. júlí 2005

Það þarf svo sem engan að undra að Lego Stjörnustríðsleikurinn seljist eins og heitar lummur enda er vart hægt að hugsa sér magnaðari blöndu til að höfða til ungra tölvuleikjaspilara en Star Wars og Lego. Það spillir svo ekki fyrir að leikurinn er lúmsk skemmtilegur og Lego kallarnir taka sig ansi hreint vel út í Stjörnsutríðsgervum sínum á skjánum.

Það sem vegur svo allra þyngst er að leikurinn er mátulega einfaldur þannig að ungir spilarar eru fljótir að ná tökum á honum og geta skautað í gegnum forleik gamla Stjörnustríðs þríleiksins í allra kvikinda líkjum með brugðna geislabranda eða byssur.
Þessi hressi Lego leikur byggir á þremur nýjustu Stjörnustríðsmyndunum, The Phantom Menace, The Attack of the Clones og Revenge of the Sith, og fylgir því eftir uppgangi og falli hins unga Anakins.
Hægt er að flakka á milli mynda og taka virkan þátt í ýmsum hápunktum þeirra eins og kappakstrinum og bardaganum við Darth Maul í Episode I og mögnuðu lokaeinvígi Obi-Wans og Anakins úr Episode III. Þegar sá bardagi er unninn lýkur sögunni svo með upprisu Svarthöfða þannig að leikurinn tengir bæði saman þessa þrjá forleki og setur þá í stærra samhengi heildarmyndarinnar. Þessi leikur er því sannkallað Stjörnustríð fyrir byrjendur og gerir nýrri kynslóð Stjörnustríðs aðdáenda auðveldara að setja sig inn í söguna og kynnast helstu persónum og leikendum.
Eftir því sem lengra líður á leikinn og spilarinn aflar sér meiri tekna í formi gullpeninga getur hann fjárfest í fleiri persónum og græjum sem auðvelda framhaldið þar sem það er vitaskuld stundum betra að vera R2-D2, Yoda eða General Grevious en Anakin eða Obi-Wan. Hver persóna býr yfir sérstökum hæfileikum þó það segi sig vitaskuld sjálft að oftast nær sé skemmtilegast að stýra þeim sem hafa stjórn á Mættinum og kunna að fara með geislasverð.
Leikurinn er eins og nafnið bendir til hannaður fyrir smáfólkið og er í alla stapi vel heppnaður og stendur vel undir væntingum krakkana. Hann er auðveldur í spilun um leið og hann er góður leiðarvísir um undraheim, langt, langt í burtu og atburði sem áttu sér stað fyrir langa löngu.


date
Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff