Þriðjudagur, 18. október 2005
The Descent
[4]
Ég stend fastur á því að fátt sé sálartetrinu jafn hollt og góður hryllingur. Aristóteles fann þetta út fyrir margt löngu þegar hann skilgreindi hreinsunaráhrif fornu grísku harmleikjanna. Hryllingsmyndir gegna svipuðu hlutverki í nútímanum. Þær gefa okkur tækifæri til þess að horfast í augu við ótta okkar, ganga inn í hann, nokkuð örugg en samt aldrei viss um að við séum hólpinn.
Það hefur skemmt fyrir þessari ágætu kvikmyndagrein að megnið af framleiddum hryllingsmyndum eru rusl þannig að það er mikið gleðiefni þegar góðir tryllar á borð við The Descent rata í bíó. Þetta er kjarngott andans fóður sem kemur hressilega við kauninn á áhorfendum.
The Descent segir frá nokkrum ævintýragjörnum vinkonum sem hafa gaman af því að reyna á þolrifin til hins ítrasta. Þær skella sér því í hellasig í Colorado en sú skemmtiferð breytist snögglega í hið mesta feigðarflan.
Hellirinn sem þær velja sér er ókannaður og þegar þær lokast þar inni komast þær að því að þar búa skaðræðisskepnur sem vilja ekkert frekar en að éta þær lifandi.
The Descent sækir slagkraft sinn í nokkrar helstu fóbíur sem gera mannkyninu lífið leitt svo sem lofthræðslu, innilokunarkennd og myrkfælni. Eins og þetta sé ekki nóg þá blanda ógeðslegar mannætur, sem virðast náskyldar Gollum í Lord of the Rings, sér svo í spilið.
Þegar lætin byrja fyrir alvöru slær leikstjórinn hvergi af og keyrslan og klippingar eru svo hraðar að maður verður alveg ruglaður í ríminu í þrengslum hellisins. Ofbeldið er vægast sagt grafískt og blóði er miskunnarlaust slett og bein og hauskúpur mölvast hægri vinstri þannig að oft þakkar maður fyrir myrkrið til þess að þurfa ekki að horfa á allan viðbjóðinn.
Neil Marshall vakti athygli með Dog Soldiers árið 2002 og hér sýnir hann enn frekar hvers hann er megnugur. The Descent er þrushrollur sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Þess ber þó að geta að eitthvað er um að viðkvæmar sálir eigi erfitt með svefn eftir að hafa setið undir myndinni.
Betri meðmæli getur hryllingsmynd ekki fengið.
| 13:08 |