»  kvikmyndir  »  Þvældur hrollur
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Þvældur hrollur
Laugardagur, 15. október 2005

Nochnoy dozor
[2]

Ætli aðalástæðan fyrir því að rússnesku hryllingsmyndinni Nochnoy dozor hafi skolað á fjörur íslenskara bíógesta sé ekki sú að sjálfur Quentin Tarantino hefur látið hafa það eftir sér að hér sé á ferðinni alveg frábær mynd. Svona meðmæli frá þungaviktarmanni í bransanum eru gulls ígildi fyrir óþekkta kvikmyndagerðarmenn og vekja óhjákvæmilega athygli sem fleytir myndum þeirra eitthvað áfram.

Tarantino er þó ekki óskeikull frekar en páfinn og hér tekur hann full djúpt í árinni og hleður Nochnoy dozor lofi sem hún stendur ekki undir. Myndin er vissulega mjög smart, skemmtilega stílfærð og hressilega blóðug og það er líklega það sem heillaði Tarantino. Handritið er hins vegar flókið, þvælt og síðast en ekki síst alger þvæla. Þegar grunnur myndar er jafn veikur er ekki von á góðu og þrátt fyrir ágæta spretti og flotta takta á köflum nær myndin engri tengingu við áhorfendur. Þegar hryllingsmyndir eru annars vegar er þetta nánast dauðadómur enda næst hvorki upp spenna né djúpstæður hrollur við þessar aðstæður.

Þá er heldur ekki frumleikanum fyrir að fara en hér segir eina ferðina enn frá hinni endalausu baráttu góðs og ills. Herir ljóss og myrkurs tókust á aftur í grárri forneskju en þar sem hvorugur hafði sigur var samið vopnahlé. Það hefur staðið fram á okkar daga en skyndilega fer allt úr böndunum og baráttan blossar upp á ný.
Fulltrúar hins illa eru blóðsugur, eins og svo oft áður, og allt minnir þetta mikið á Buffy the Vampire Slayer, Blade og Underworld. Það er eina sem er öðruvísi hér er að baráttan fer nú fram í Moskvu en ekki Bandaríkjunum.

Nochnoy dozor tekur sig líka miklu alvarlegar en amerísku hliðstæðunnar og hér er reynt að koma svo mörgu á framfæri, flétta saman margar sögur og segja svo margt að allt lekur þetta út í einn allsherjar ruglgraut. Nochnoy dozor er því lítið annað en töff stílæfing með smart hryllingsívafi en skilur ekkert eftir sig og er langdregin og leiðinleg á köflum.


| 23:46 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff