»  kvikmyndir  »  Svarthöfði lokar hringnum
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Svarthöfði lokar hringnum
Föstudagur, 02. desember 2005

Star Wars
Episode III: Revenge of the Sith

Sumar kvikmyndir eru þess eðlis að manni finnst maður verða að eignast þær. Allar Stjörnustríðsmyndirnar sex eru þannig þó þær séu misjafnar að gæðum. DVD-safn allra fullgildra Star Wars nörda verður nú loks fullkomnað með útkomu Episode III: Revenge of the Sith.

Þessi lokamynd seinni Stjörnustríðsþríleiks George Lucas er sú langbesta í seinni bálknum og er því miklum mun eigulegri en Episode I og Episode II sem maður er auðvitað samt löngu búinn að kaupa.
Í þessum magnaða lokakafla fylgjumst við með falli Anakins Geimgengils sem rís upp sem erkiskúrkurinn Svarthöfði í lok myndar. Fallið er flott og myndin tengir þríleikina tvo smekklega saman þannig að maður er alveg til í að skella Episode IV: A New Hope í spilarann um leið og maður er búinn með Revenge of the Sith.

Það er samt ekki síst aukaefnið á DVD-diskunum sem forfallnir Stjörnustríðsaðdáendur eru á höttunum eftir og það er óhætt að segja að Lucas sjái vel um sína. Það er vel staðið að útgáfu Episode III sem kemur á tveimur DVD-diskum. Sá fyrri geymir myndina sjálfa í toppgæðum auk þess sem hægt er að hlusta á Lucas og ­helstu­ samstarfsmenn hans ræða gerð myndarinnar á meðan hún rúllar í gegn. Þessi bónus höfðar auðvitað ekki til allra en fyrir okkur sem viljum vita allt um það sem gerist í hausnum á George Lucas er þessi viðbót hvalreki.

Annað aukaefni stendur einnig fyllilega fyrir sínu. Tveggja tíma heimildarmynd um allar þær tæknideildir sem koma að gerð Star Wars veitir skemmtilega innsýn í gerð þessara tröllvöxnu tækniundra sem þessar myndir eru. Rúsínan í pylsuendanum eru svo vitaskuld fjórar senur sem komust ekki að í lokaklippi myndarinnar. Hér þurfa Obi-Wan og Anakin meðal annars að horfa upp á General Grievous drepa varnarlausan Jedi-riddara, Padmé þvæl­ist í pólitík með framtíðarleiðtogum uppreisnarmanna og svo fáum við að sjá Yoda stíga frá borði þegar hann kemur í útlegð sína til Dagobah.
Allt eru þetta skemmtilegar viðbætur sem hefðu sómt sér vel í myndinni þó Lucas hafi ákveðið að fórna þeim fyrir heildarhagsmunina.


| 23:14 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff