Miðvikudagur, 08. mars 2006
Match Point
[3]
Woody Allen er skemmtilegur leikstjóri. Mistækur að vísu en hann er í toppformi í Match Point, sem er hans besta mynd í mörg ár. Myndin er því himnasending fyrir aðdáendur leikstjórans og ætti þar fyrir utan að höfða til allra sem standa fyrir utan þann þröngsýna hóp sem hefur gert það að íþrótt að hatast við Allen.
Match Point er mannlegur harmleikur um góðan dreng sem spillist af hvötum sínum og kemur sér í slík óefni að hann finnur sig knúinn til að grípa til örþrifaráða.
Allen keyrir myndina sem fyrr á persónusköpun og samtölum og atburðarásin er hæg. Hann gefur sér góðan tíma til að kynna persónurnar og skapa með þeim samúð sem gefur tragedíunni mikinn slagkraft þegar ósköpin dynja yfir.
Myndin gerist í London en það eru í raun stórtíðindi að Allen skuli færa sig frá griðlandi sínu Manhattan. Þessi tilbreyting virkar vel enda er Allen í eðli sínu Evrópumaður. Hér eru mætt til leiks yfirstéttasystkinin Chloe og Tom en tilvera þeirra snýst um að lepja hanastél, spila tennis og fara í óperuna. Vinskapur tekst með írska tennisleikaranum Chris, sem endar með því að giftast Chloe. Nola, kærasta Toms, skekur svo þessa draumaveröld Chris sem telur sig heldur betur vera kominn í álnir. Nola er misheppnuð bandarísk leikkona en löðrandi í slíkum kynþokka að Chris fær ekki staðist töfra hennar. Þau taka upp leynilegt ástarsamband sem vindur heldur betur upp á sig þegar Tom og Nola slíta samvistum.
Chloe hefur lagt fram skýlausa kröfu um að hún og Chris eignist barn. Eitthvað gengur getnaðurinn brösulega, sem verður til þess að Chris missir kynferðislegan áhuga á konu sinni en langanir hans til Nolu magnast að sama skapi. Til að bæta svo gráu ofan á svart tekst honum að barna viðhaldið á meðan hvorki gengur né rekur í þeim efnum í hjónasænginni.
Nola ætlar sér ekki að ala barnið upp ein og leggur hart að Chris að fara frá Chloe. Hann er hins vegar orðinn svo háður gljálífi yfirstéttarinnar að hann getur ekki hugsað sér að snúa baki við eiginkonu sinni. Lygavefurinn þéttist og hann reynir að spila bæði á eiginkonu og viðhald þar til allt fer til andskotans.
Þetta er auðvitað eldgömul tugga en í meðförum Allens gengur gamla viðhaldsklisjan í endurnýjun lífdaga og það er óhætt að segja að hér snúi hann hressilega upp á staðalmyndir tálkvendisins og ólánsama aumingjans sem lætur gredduna tortíma sér. Match Point er í raun film noir í dulargervi. Hægfara spennumynd sem kemur skemmtilega á óvart þegar upp er staðið.
Match Point er flott mynd. London býður upp á fallegar sviðsmyndir og tónlistin er vel valin eins og Allens er von og vísa. Hann bregður á leik með tökuvélina og nær miklu út úr leikurunum. Jonathan Rhys Meyers stendur sig með sóma og Scarlett Johansson er auðvitað yndi í alla staði, brjálæðislega ögrandi og sexí annars vegar og hins vegar lítil, brothætt og varnarlaus. Þá setja öndvegismennirnir Ewen Bremner og James Nesbitt skemmtilegan svip á myndina í litlum hlutverkum tveggja rannsóknarlögreglumanna.
Það leikur allt í höndunum á Allen að þessu sinni og niðurstaðan er eðalræma sem ætti að heilla áhorfendur langt út fyrir dyggasta aðdáendahóp leikstjórans.
| 9:23 |