»  kvikmyndir  »  Allir í stuði á ísöld
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Allir í stuði á ísöld
Þriðjudagur, 18. apríl 2006

Ice Age 2
[2]

Tölvuteiknimyndin Ice Age 2 er skólabókardæmi um hvernig kostulegar persónur geta rifið upp frekar slappa sögu þannig að úr verður fyrirtaks skemmtun. Ice Age var bráðvel heppnuð, þrælskemmtileg og vinsældir hennar voru slíkar að framhald var óumflýjanlegt. Þeir eru því mættir aftur til leiks mammútinn Manny, letidýrið Sid og sverðtanninn Diego.

Síðast þurftu félagarnir að koma týndu mannsbarni til föðurhúsanna en nú steðjar að þeim öllu svakalegri ógn.
Ísöldin er að renna sitt skeið, klakinn bráðnar hratt og allt stefnir í að dalurinn þeirra fari á kaf. Það þarf því að bregðast skjótt við þessum ótímabæru gróðurhúsa­­áhrifum og smala öllum dýrum merkurinnar í öruggt skjól.
Þríeykið leiðir flóttann og í för með þeim slást rugluð mammútastelpa og „bræður“ hennar tveir, fríkaðar pokarottur. Þessum nýju félögum er ætlað að halda uppi fjörinu en það skyggir þó enginn á Sid sem er sem fyrr hjartað og sálin í gegningu og heldur vinum sínum við efnið með endalausum heimskupörum. John Leguizamo fer á kostum þegar hann ljær Sid rödd sína og Ray Romano, sem Manny, og Denis Leary í hlutverki Diegos gefa honum lítið eftir.
Söguþráðurinn er frekar þvældur og samhengislaus en það kemur ekki að sök. Stuðið er svo mikið að það er varla dauðan punkt að finna og ferðalagið sjálft er algert aukaatriði. Bara einföld ástæða fyrir því að þetta föruneyti fornaldarfurðufugla fái notið sín með kostulegum kjaftavaðli og fíflagangi.
Senuþjófur síðustu myndar, íkornaundrið sem er í endalausum eltingaleik við akranið eina. Skepnan fær meira pláss til þess að njóta sín að þessu sinni og þar er ekki augnabliki eytt í óþarfa. Þessi ævaforni Sýsifos er dásamlegur í látlausum hremmingum sínum og rífur upp grínið með reglulegu millibili.
Ice Age 2 er því í það heila tekið býsna vel heppnuð, frábær skemmtun jafnt fyrir börn sem fullorðna þó það hefði vissulega mátt taka aðeins meira tillit til þeirra sem eldri eru með smá kjöti á beinum sögunnar.


| 13:20 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff