Sunnudagur, 30. apríl 2006
Moonlighting
Það svífur einhver undarlegur sjarmi yfir yfir sjónvarpsþáttum níunda áratugarins. Þetta loðir einnig við tónlist þessa tímabils. Hún er ekki beinlínis góð og enn síður innihaldsrík, nánast hallærisleg en samt eldist hún ótrúlega vel. Það þarf því engan að undra að endurútgáfa gamalla sjónvarpsþátta á DVD standi í miklum blóma og það er auðvitað fagnaðarefni að sígildir gullmolar skuli vera gerðir aðgengilegir á ný. Hver vill til dæmis ekki endurnýja kynnin við Don Johnson í Miami Vice og Bruce Willis og Cybill Shepherd í Moonlighting?
Þessir þættir gerðu það gott í árdaga Stöðvar 2 og Moonlighting naut töluverðra vinsælda þar til þættirnir runnu út í tóma þvælu. Fyrstu tveir árgangarnir eru komnir út á DVD í einum pakka og þar standa Willis og Shepherd fyllilega fyrir sínu í hlutverkum Dave Addisons og Maddie Hayes.
Þegar þetta sérkennilega tvíeyki er kynnt til sögunnar er Maddie sest í helgan stein og lifir góðu lífi á auðævum sem hún aflaði sér á farsælum fyrirsætuferli. Hún vaknar svo upp við vondan draum þegar hún kemst að því að endurskoðandinn hennar er stunginn af með allt lausafé. Þá þarf að draga saman seglin og selja eignir. Í þeim hræringum kemst hún að því að í eignasafni henanr leynist einkaspæjarastofa sem rekin er með bullandi tapi.
Þar ræður spæjarinn Addison ríkjum og streitist á móti þegar Maddie hyggst selja. Addison er sjálfumglaður spjátrungur sem hefur aldrei leyst sakamál en lifir í þeirri vissu að stóra tækifærið sé handan við hornið. David og Maddie flækjast fyrir tilviljun, í miðju rifrildi, inn í morðmál og þá verður ekki aftur snúið. David talar Maddie inn á það að það eina rétta sé að leysa málið og nota fjölmiðlaathyglina til þess að koma stofunni á kortið. Þar með er dásamlegt samstarf tveggja gerólíkra einstaklinga hafið og þessi kostulega þáttaröð rúllar af stað.
Dave og Maddie eru vitaskuld alltaf í ástar/haturssambandi og spennan milli þeirra er frá upphafi límið sem heldur þessu öllu saman. Samleikur Willis og Shepherd er bráðskemmtilegur, sem verður að teljast býsna gott þar sem leikararnir hötuðust innilega bak við tjöldin. Willis er þarna að stíga sín fyrstu skref og hefur sjálfsagt aldrei verið betri. Persóna Addisons er sérsniðin fyrir hann og hann blómstrar í hlutverki þessa kærulausa og heillandi fífls.
Þeir sem horfðu á Moonlighting á sínum tíma verða ekki sviknir af endurfundum við Dave og Maddie og þeir sem fóru á mis við þessa lúmsku snilld ættu hiklaust að gefa þátttunum séns.
| 13:10 |