»  kvikmyndir  »  Steindauðar frumhvatir
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Steindauðar frumhvatir
Miðvikudagur, 05. apríl 2006

Basic Instinct 2
[0]

Basic Instinct var alls ekki svo slæm mynd þegar hún var sýnd í bíó árið 1992. Handrit hennar var að vísu skrifað af erkifíflinu Joe Eszterhas (Sliver, Showgirls) og var því löðrandi í kynlífi, ofbeldi og blóði. Sem sagt öllu sem þarf að prýða góðan þriller. Hollendingurinn filmandi, Paul Verhoeven, matreiddi svo subbuskapinn á sinn sérstaka hátt þannig að úr varð ágæt skemmtun þó Basic Instinct eldist engan veginn vel.

Það var uppselt á myndina dögum saman eftir frumsýningu í Regnboganum hér heima, ekki síst þar sem það spurðist hratt út að Sharon Stone léti glitta í píkuna á sér í myndinni. Hún var þá funheit bomba, nýbúinn að gera sjálfum Arnold Schwarzenegger lífið leitt sem morðóð tík í Total Recall, og allir vildu því fá að sjá.
Vinsældir Basic Instinct úti um allan heim urðu strax til þess að mógúlarnir í Hollywood fóru að íhuga framhaldsmynd en það er fullseint í rassinn gripið að koma með hana fjórtán árum síðar þegar öllum er sama hvaða líkamsparta Stone afhjúpar á hvíta tjaldinu. Michael Douglas var á sínum tíma fljótur að bakka út úr öllum viðræðum um framhaldsmynd enda þótti hugmyndin slæm fyrir rúmum áratug en að ráðast í þetta nú er hreinlega óðs manns æði. Fyrir vikið er Basic Instinct 2 ein leiðinlegasta, tilgangslausasta og sorglegasta framhaldsmynd sögunnar og er samt af nógu að taka.
Söguþráðurinn er einn allsherjar hrærigrautur og handritið er svo vont að Eszterhas lítur út eins og Nóbelsskáld í samanburðinum. Ég nenni ekki að rekja bjánalega moðsuðuna hér en í stuttu máli skýtur kyn- og morðóði rithöfundurinn Catherine Tramell aftur upp kollinum. Nú er hún komin til London og notar kynþokka sinn til þess að taka jafnt karla og konur á taugum og líkin hrannast upp. Helsta fórnarlamb hennar er geðlæknirinn Michael Glass, sem leysir Michael Douglas af, en örlög hans eru vitaskuld innsigluð um leið og hann bannar Tramell að reykja.
Myndin nær aldrei upp spennu, ofbeldið er sparað um of og er illa notað þegar að því kemur en það versta af öllu er að kynlífsatriðin, sem væntanlega eiga að vera aðall myndarinnar, eru jafn flöt, köld og ósexí og ljósbláu myndirnar sem sýndar voru á Sýn fyrir allnokkru.
Stone hefur misst allt sem hún hafði og er skelfilega ósannfærandi tálkvendi. Nú skiptir aldur og útlit engu þegar kynþokki er annars vegar enda kemur hann að innan. Góð leikkona á fimmtugsaldri hefði því alveg valdið þessu en Stone er steingeld. Þá er David Morrissey afleitur í hlutverki læknisins og meira að segja eðalleikarinn David Thewlis er eins og fífl í hlutverki löggunnar sem er á hælum Stone.
Það er hreinlega ekki ljósan punkt að finna í Basic Instinct 2, sem er í besta falli átakanleg tímasóun en í versta falli... ja ég veit hreinlega ekki hvað.


| 13:18 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff