»  kvikmyndir  »  Ekki meir, ekki meir!
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Ekki meir, ekki meir!
Mánudagur, 01. maí 2006

Scary Movie 4
[0]

Scary Movie var ekki góð mynd, Scary Movie 2 var verri, Scary Movie 3 var leiðinlegri en hinar tvær til samans og Scary Movie 4 er sú allra versta. Það er fátt jafn dapurlegt og ófyndnar gamanmyndir og Scary Movie 4 er svo ófyndin að það er beinlínis átakanlegt.

Það sem er fúlast við þessar Scary Movie myndir er að þær gætu alveg verið fyndnar enda ætti það ekki að vera mikið mál að snúa upp á myndir eins og Saw, The Grudge, The Village og War of the Worlds eins og reynt er að gera hér. Andleysi handritshöfundanna er bara svo yfirþyrmandi og skopskynið á svo lágu plani að grunnhugmyndin að baki myndinni er andvana fædd. Hér gengur leikurinn aðallega út á það að endurskapa atriði úr áður nefndum myndum og snúa þeim svo upp í máttlausa fimmaurabrandara.
Ég leyfði mér fyrirfram að gera mér ákveðnar vonir um Scary Movie 4 þar sem þær myndir sem hér eru teknar fyrir liggja vel við höggi. Vonbrigðin eru þeim mun meiri og ég skil ekki hvað hefur komið fyrir leikstjórann David Zucker sem á að baki frábærar gamanmyndir eins og Airplane!, Top Secret! og Naked Gun sem allar byggja á sömu formúlunni og Scary Movie myndirnar. Zucker er greinilega heillum horfinn og eftir Scary Movie 3 og 4 er deginum ljósara að það er tímabært fyrir hann að setjast í helgan stein. Scary Movie hefur hins vegar illu heilli slegið í gegn í Bandaríkjunum, fór rakleiðis á toppinn eftir frumsýningu og við megum því eiga von á enn fleiri Scary Movie myndum. Vinsældir myndarinnar bera andlegum þroska bandarískra bíógesta sorglegt vitni og gefa manni í raun fullt tilefni til þess að missa svefn af áhyggjum af hnignun heilbrigðrar skynsemi og skopskyns í heiminum. Sé þetta það sem koma skal verða gamanmyndir af þessu tagi hryllilegri en hrollvekjurnar sem þeim er ætlað að snúa upp á.
Söguþráð myndarinnar er óþarfi að rekja enda er það ekki hægt en meginstefum og atriðum úr Saw, The Grudge, The Village, War of the Worlds, Brokeback Mountain og einhverju smálegu til viðbótar er hrært saman í samhengislausan graut sem væri svo sem allt í lagi ef þessi ósköp væru fyndin. Þegar bestu sprettirnir eru teknir getur maður rétt brosað út í annað en þess á milli mænir maður á klukkuna og bíður þess að eyðimerkurgöngunni ljúki.


| 13:03 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff