Fimmtudagur, 08. júní 2006
The Omen
[3]
Árið 1976 sendi hinn ágæti leikstjóri Richard Donner (Superman, Lethal Weapon) frá sér hryllingsmyndina The Omen. Þessi 30 ára gamli hrollur er fyrir löngu orðinn sígildur enda var myndin ákaflega vel mönnuð með kempuna Greogry Peck í hlutverki sendiherra Bandaríkjanna í London sem ól afkvæmi Satans upp sem sitt eigið. Lee Remick gaf ekkert eftir sem eiginkona sendiherrans, David Warner fór vel með rullu fréttaljósmyndara sem varð lykilmaður í lausn gátunnar um And-Krist og hrollvekjudrottningin Billie Whitelaw var vægast sagt ógnvekjandi sem Mrs. Baylock, barnfóstran frá helvíti.
Undir sígildum átökum góðs og ills dundi svo djöfulleg tónlist Jerry Goldmsith, bergmál af Carmina Burana eftir Orff, sem gulltryggði að áhorfendur efuðust ekki eitt augnablik um að sonur Satans væri stiginn til jarðar og var áður en yfir lauk kominn með annan fótinn inn fyrir þröskuld Hvíta hússins.
Tala dýrsins 666 er allt í öllu í The Omen og það tekur því varla að hafa mörg orð hvorki um hana né söguþráð myndarinnar og hér er því um algera sóun á plássi og prentsvertu að ræða nema einhver hafi ekki lesið Biblíuna, ekki séð upprunalegu myndina og ekki heldur hlustað á lagið The Number of the Beast með Iron Maiden.
The Omen er gerð eftir samnefndri skáldsögu Davids Seltzer sem lék sér með þá hugmynd úr Opinberunarbók Jóhannesar að þegar dýrið, eyrnamerkt hinni djöfullegu tölu 666, risi úr djúpinu, með hóruna frá Babýlon á bakinu, ef ég man rétt, myndi mannkyn farast. Hjá Seltzer birtist þessi And-Kristur sem hvítvoðungurinn Damien, getinn af sjakala á sjötta degi, sjötta mánaðar ársins klukkan sex. Svo "óheppilega" vill til að á sama tíma deyr barn Roberts Thorn, sendiherra, og eiginkonu hans, Katherine, í fæðingu og Robert fellst á það að undirlagi vafasams sjúkrahússprests að taka Damien að sér og ljúga því að eiginkonu sinni að hann sé sonur þeirr hjóna. Þetta gerir ambassadorinn vitaskuld í trausti þess að hinn ættleiddi sé mennskt barn móður sem fórst af barnsförum.
Nokkur ár líða þar til dularfull dauðsföll í kringum Damien fara að vekja upp spurningar um leið og móðirinn fer að efast um að barnið sé hennar. Sendiherrann áttar sig svo hægt og bítandi á því að eiginkona hans hefur alið nöðru við brjóst sér en þá gæti það verið um seinan. Framtíð mannkyns alls gæti verið í húfi og það stendur upp á hann að drepa "son" sinn samkvæmt ákveðnu ritúali.
Nú, árið 2006, er Damien kominn aftur. Gregory Peck er horfinn yfir móðuna miklu og Liev Schreiber fyllir skarð hans sem Robert Thorn. Þessi nýja Omen mynd er býsna vel mönnuð, eins og forverinn, og það er enginn ástæða til að kvarta yfir íslandsvinkonunni Julia Styles í hlutverki móðurinnar eða David Thewlis sem staðgengli Davids Warner. Þá er eitthvað mjög svo ónotalegt við Miu Farrow í hlutverki fóstrunnar illu þó hún verði aldrei nema skugginn af Whitelaw og öndvegisleikararnir Pete Postlethwaite og Michael Gambon skila sínu með sóma í smærri en ekki síður mikilvægum hlutverkum.
Það er því býsna vel að verki staðið í þessari uppfærðu útgáfu The Omen en þar sem um er að ræða endurgerð pottþéttrar myndar þá er hún í raun jafn óþörf og ljósrit Gus Van Sant af Psycho. Af hverju að laga það sem er ekki bilað?
Hér hjálpar það þó óneitanlega til að nýja myndin er ekki endurgerð ramma fyrir ramma. Sagan er tengd samtímanum og meiri áhersla er lögð á angist móðurinnar sem áttar sig á að barnið hennar er beinlínis illt.Ekkert nema gott um það að segja en þetta bætir engu við upprunalegu söguna og The Omen anno 1976 stendur eftir sem mun kraftmeiri mynd. Hér vantar herslumuninn og það verður að segjast eins og er að þó Schreiber sé fínn leikari þá kemst henn ekki með tærnar þar sem Peck var með hælana.
Þá er mikill söknuður í tónlist Goldsmith en án hennar verður þetta allt saman hálf holt að innan. Það eina sem nýja myndin gerir af viti er að kynna þessa fínu sögu fyrir nýrri kynslóð sem nennir líklega ekki að sækja frummyndina út á leigu. Fyrir okkur hin sem munum eftir hremmingum Peck er þetta lítið annað en notaleg upprifjun á góðum hrolli enda standa myndræn og humyndaríkm dráp myrkraflanna á þeim sem hyggjast leggja grjót í götu Damiens litla enn fyllilega fyrir sínu. Þessi mynd mun væntanlega geta af sér tvær framhaldsmyndir rétt eins og sú fyrri og það er allt í góðu með það en hún verður sient sígild.
| 16:47 |