Mánudagur, 11. september 2006
Volver
[4]
Volver (Endurkoman) er með betri myndum spænska leikstjórans Pedro Almodóvar enda njóta öll helstu höfundareinkenni hans sín til fullnustu. Myndin er mikið fyrir augað og þar vegur útpæld og skemmtileg litanotkun þungt ásamt kúnstugum sviðssetningum. Þá spillir ekki fyrir að sagan sem Almodóvar segir er áhugaverð; harmræn og kómísk í senn. Almodóvar er sterkastur á svellinu þegar hann fjallar um konur og Volver er sannkölluð konumynd og þeir fáu karlar sem koma við sögu eru mannleysur eða skítalabbar sem þjóna þeim tilgangi einum að hrinda atburðarásinni af stað með því að kalla sorg og vandræði yfir konurnar.
Það borgar sig að hafa sem fæst orð um söguþráðinn sem hverfist um fjórar konur; systurnar Raimundu og Sole, látna móður þeirra og Paulu, unglingsdóttur Raimundu. Þegar eiginmaður Raimundu misnotar Paulu kynferðislega grípur hún til sinna ráða og setur um leið tilveru sína heldur betur úr skorðum. Draugur móður hennar gerir vart við sig um svipað leyti og Raimunda þarf því að gera upp fortíðina um leið og hún leysir úr flækjunni sem líf hennar er komið í en mamma gamla á þó eftir að reynast dætrum sínum og barnabarni haukur í horni.
Leikkonurnar fjórar í þessum burðarhlutverkum eru fantagóðar en Penélope Cruz ber af og hefur ekki verið betri síðan hún fluttist til Hollywood og gekk inn í hvert froðuhlutverkið á fætur öðru. Hér sýnir hún allt sem í sér býr og blómstrar í bitastæðu hlutverki Raimundu.
| 9:03 |