»  kvikmyndir  »  Fínn ruddakrimmi
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Fínn ruddakrimmi
Þriðjudagur, 31. október 2006

The Departed
[4]

Martin Scorsese er í toppformi í The Departed sem er tvímćlalaust langbesta glćpamynd sem ratađ hefur í kvikmyndahús í háa herrans tíđ. Hún ţolir vel samanburđ viđ bestu glćpamyndir leikstjórans, Goodfellas, Casino og Taxi Driver, og er hársbreidd frá ţví ađ standa jafnfćtis ţeim.
Ţađ klikkar ţó ekkert í The Departed. Sagan er áhugaverđ og spennandi, leikurinn í flestum tilfellum frábćr, tónlistin vel valin og kvikmyndatakan eins og best verđur á kosiđ.

Handritiđ byggir á Hong Kong myndinni Infernal Affairs og áhrifin eru augljós og hin sérstaka austrćna byssubófastemning nýtur sín lygilega vel í vestrćnu dulargervi í Boston ţar sem írsk- og ítalskćttađar löggur og bófar berast á banaspjót.

Glćpaforinginn Frank Costello (Jack Nicholson) er prímusmótor myndarinnar. Atburđarásin hverfist um hann og Nicholson, sem er í miklum jötunmóđ, keyrir myndina áfram. Hann á fyrstu setningar myndarinnar, grípur áhorfandann strax traustataki og myndin rígheldur frá fyrsta ramma.

Costello er útsmoginn og ofbeldisfullur siđblindingi sem kemur ungum manni úr sínum röđum, Colin Sullivan (Matt Damon), fyrir innan sérsveitar lögreglunnar sem einbeitir sér ađ ţví ađ koma lögum yfir hann. Á sama tíma plantar lögreglan sínum manni, Billy Costigan (Leonardo DiCaprio), viđ hliđ Costello. Báđir hópar komast ađ ţví ađ svikari er međal ţeirra og ungu uppljóstrararnir tveir eiga allt undir ţví ađ afhjúpa hvor annan, ţar sem sá sem fyrr verđur flett ofan af mun ekki ţurfa ađ kemba hćrurnar.

DiCaprio er ađ verđa óskabarn Scorseses, rétt eins og Robert De Niro á árum áđur, og ţađ er sláttur á drengnum í hlutverki löggunnar sem sogast dýpra og dýpra ofan í heim glćpa og ofbeldis. Damon gefur honum lítiđ eftir sem svikarinn innan lögreglunnar en sá dagfarsprúđi piltur verđur ć ógeđfelldari eftir ţví sem á líđur.

Ţađ er einnig völlur á gömlu brýnunum Martin Sheen og Alec Baldwin sem standa sig býsna vel. Ţá er Mark Wahlberg hörkugóđur og ţrćlskemmtilegur í hlutverki geđstirđrar löggu og breski naglinn Ray Winstone skautar í gegnum rullu ofbeldisfauta.

Matreiđsla Scorseses á ruddalegu ofbeldi og drápum er sem fyrr til hreinnar fyrirmyndar en rétt eins og í lífinu sjálfu blossar ofbeldiđ upp óvćnt og hefur ógeđslegar afleiđingar. Ofbeldisatriđunum er slengt framan í áhorfendur sem komast ekki hjá ţví ađ ţjást međ persónunum.

Scorsese hefur alla ţrćđi í styrkri hendi, fléttar ţá saman í firnasterka og áhrifaríka heild og skilar fyrsta flokks glćpamynd sem heldur áhorfandanum viđ efniđ hverja mínútu og fylgir honum í ţađ minnsta alla leiđina heim.


| 21:54 |
komment

Mikiđ helvíti er ţetta góđ mynd hjá karlinum. Honum er ekkert fariđ ađ förlast. DiCaprio fantagóđur og Damon líka. Um Jack ţarf ekki ađ tala.

Firna góđ mynd.

Nr. 1 | beggi dot com | 2.11.2006 | 0:45:26 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóđbönd

Taxi

Bloggar

Stöff