»  kvikmyndir  »  Hafrar og sauðir í Hollý
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Hafrar og sauðir í Hollý
Fimmtudagur, 12. október 2006

Það háir mér bæði sem gagnrýnanda og almennum kvikmyndaáhugamanni að ég met kvikmyndaleikara á ákaflega persónulegum nótum. Sumir höfða til mín og aðrir ekki og þeir sem fara í taugarnar á mér geta hæglega eyðilagt fyrir mér heilu bíómyndirnar, dagana og jafnvel árin.

Humphrey Bogart, Steve McQueen, Ray Winstone og Mickey Rourke eru mínir menn vegna þess að þeir eru ekta. Þeir léku eða leika töffara og voru og eru töffarar bæði á tjaldinu og í einkalífinu.

Tom Cruise og Brad Pitt leika oft töffara en þeir eru aumingjar. Leiðindagaurar sem eru komnir allt of langt og þéna miklu meira en þeir eiga skilið. Það gerir mér lífið svo auðvitað óendanlega erfitt að þessir gaurar eru skærustu stjörnurnar í dag og eru daglegir gestir í slúðurdálkum og fastir póstar í stórmyndum á meðan það hefur til dæmis kostað Mickey Rourke ferilinn að vera hann sjálfur. Fölsku gaurarnir eru greinilega málið í Hollywood.

Rourke var betri leikari en Cruise en hann skrapar botninn á meðan Cruise lifir í vellystingum. Þetta er samt ekki það versta við Cruise. Ég þoli hann bara ekki en það er mitt vandamál.
Sama er að segja um Pitt. Þegar hann og Johnny Depp voru að byrja fékk Pitt 7 milljónir dollara fyrir mynd á meðan Deep fékk eina. Ekki mikið réttlæti í því þar sem Deep er miklu betri leikari og miklu, miklu fallegri en Pitt. Pitt hefur alltaf farið í taugarnar á mér og til að bæta gráu ofan á svart þá er ég skotinn í Angelinu Jolie og eftir að hann byrjaði með henni hef ég hatað hann.

Laun heimsins eru vanþakklæti og það sést hvergi betur en í Hollywood þar sem allt gildismat er kolbrjálað og réttlætið er ekkert. Þar fara sauðirnir í fylkingarbrjósti og hafrarnir reka lestina.


| 13:52 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff