Fimmtudagur, 19. október 2006
Leikstjórinn Martin Scorsese er í toppformi í sinni nýjustu mynd The Departed og gagnrýnendur halda vart vatni af hrifningu. Handrit myndarinnar er byggt á Hong Kong myndinni Infernal Affairs en sagan er færð með miklum ágætum til Boston þar sem löggur og bófar takast á með miklum bægslagangi.
Það er því óhætt að segja að Scorsese sé kominn aftur á kunnuglegar slóðir en hann er, eins og dæmin sanna, áberandi bestur þegar hann fæst við glæpahyski og durta. The Departed ber öll helstu höfundareinkenni leikstjórans sem nær ótrúlega miklu út úr vöskum leikhópnum.
Myndin kemst næstum því með tærnar þar sem Scorsese hafði hælana í Goodfellas og Casino og sem fyrr hefur hann einstakt lag á að útfæra ofbeldi á ónotalega smekklegan hátt.
Scorsese gerði Casino árið 1995 og síðan þá hefur hann látið mafíósa eiga sig og gert ágætis myndir á borð við Gangs of New York og Aviator en það verður að segjast eins og er að það fer manninum langbest að blanda sér í skipulagða glæpastarfsemi.
Robert De Niro hefur iðulega borið bestu myndir Scorsese uppi en hann hefur nú skipt sínum manni út fyrir Jack Nicholson sem kemur inn af fullum krafti og er mun ferskari en De Niro hefur verið síðustu ár. Samstarf þessa tveggja risa í amerískri kvikmyndagerð er því bæði heppilegt og löngu tímabært. De Niro hefur staðnað og getur vart leikið nokkuð annað en sjálfan sig.
Scorsese er hins vegar enn ferskur og eins og góður þjálfari verður hann að skipta markakóngi sínum út þegar hann hættir að skora en þá er ekki ónýtt að vera með hamhleypu eins og Nicholson á kantinum.
| 18:29 |