»  kvikmyndir  »  Hvar er klassinn?
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Hvar er klassinn?
Fimmtudagur, 23. nóvember 2006

Þegar maður horfir yfir þann gellufans sem stelur allri athygli í Hollywood og leggur undir sig slúðurdálka bæði heimspressunnar og íslenskra dagblaða getur maður ekki annað en horft með söknuði til þeirra tíma þegar leikkonur höfðu klassa og persónulegan stíl.

Rita Hayworth, Audrey Hepburn, Grace Kelly, Ingrid Bergman, Sophia Loren, Lauren Bacall, Bette Davis, Brigitte Bardot, Greta Garbo og jafnvel Marilyn Monroe höfðu eitthvað við sig. Einhvern óræðan og seiðandi stíl og hafa allar, hver á sinn hátt, orðið ógleymanlegar og ódauðlegar. Þær eru með öðrum orðum klassískar.

Það fer ekki mikið fyrir fágun og stíl í því innantóma freyðibaði sem sviðsljósið er í dag. Hvorki hjá körlum né konum og ekkert í fari Pamelu Anderson, Hillary Duff, Önnu Nicole Smith, Lindsay Lohan, Parisar Hilton og jafnvel sjálfrar Angelinu Jolie bendir til þess að minning þeirra muni lifa um ókomna tíð. Þær eiga ekkert í þær heiðurskonur sem lýstu hvíta tjaldið upp þó þær væru í svart/hvítu á árum áður enda vantar þessar konur allan klassa.

Kvikmyndastjörnur hafa alla tíð látið öllum illum látum og hneykslismál eru ekki ný af nálinni í heimi þeirra en það var eitthvað ekta við bramboltið í gömlu stjörnunum. Ef til vill felst skýringin í því að fólk varð fullorðið fyrr á árum áður. Bacall var til dæmis fullsköpuð stjarna 19 ára gömul og var laus við stælana sem einkenna Lohan og Hilton.

Bægslagangurinn í þessum plássfreku skvettum gerir það að verkum að manni finnst stundum eins og klassakonan sé horfin á braut en þegar froðunni er skolað burt þá leynast þær þarna auðvitað. Cate Blanchett, Monica Bellucci, Kate Winslet og Audrey Tautou eru sem betur fer á réttu og markvissu róli á toppinn. Þær eru alvöru leikkonur sem munu fyrst og fremst í krafti raunverulegra hæfileika fylla flokk gömlu stjarnanna þó það skemmi auðvitað ekki fyrir að þær hafa allar sinn sérstaka klassa.

Það er þó auðvitað umhugsunarefni að allar eru þær evrópskar. Þær voru það vissulega líka margar hverjar í gamla daga en ný Bacall, Hayworth eða Kelly virðast síður en svo í sjónmáli í höfuðvígi bíóbransans.


| 12:43 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff