Sunnudagur, 17. desember 2006
Lífið er undarleg hringavitleysa sem virðist meira eða minna byggja á endalausri endurtekningu hins sama. Sömu straumar og stefnur ganga yfir okkur með reglulegu millibili þannig að okkur ætti að vera orðið ljóst að allt eru þetta einungis gárur á hinu rómantíska meginhafi sem tilvera okkar allra er.
Hár síkkar og lengist, sem og pils og kjólar, eftir duttlungum tískumógúla og sjálfsagt ekkert við því að segja eða gera en sumt finnst manni einhvern veginn að eigi aldrei að skjóta upp kollinum eftir að hafa runnið sit skeið einu sinni. Minnisvarðar um tíma sem ástæðulaust er að sakna.
Hollywood er sjálfsagt besta dæmið um hringdans endurtekninganna. Þar er endalaust gert út á sömu formúlurnar og framhaldsmyndagerð er blómlegur iðnaður sem felur aðallega í sér að segja sömu söguna aftur og aftur og bæta rómverskri tölu aftan við titilinn.
Þetta hefur gengið ágætlega hingað til og hefur fært mógúlunum heim sanninn um að það er farsælla að veðja alltaf á sama hestinn frekar en að eyða tíma og orku í að finna nýjan upp á von og óvon um hvort hann skili sér yfirleitt í mark.
Það kemur manni því fátt á óvart þegar endurvinnsla Hollywood er annars vegar en samt verð ég að viðurkenna að sú grilla að sækja hetjur sem voru á síðasta söludegi á tíunda áratug síðustu aldar kom mér fullkomlega í opna skjöldu.
Rambó og Rocky eru að koma aftur. Kaldastríðshermaðurinn í fjórða sinn og kaldastríðsboxarinn í það sjötta. Maður hlýtur að spyrja sig hvort þeir hafi átt einhverju ólokið? Báðir búnir að berja og drepa Rússa á færibandi og margbjarga hinum frjálsa heimi.
Ég veit það ekki og hallast að því að þessar ótímabæru upprisur muni ekki höfða til neinna nema afdankaðra eftirlegukinda sem stöðnuðu á níunda áratugnum og syrgja enn sítt að aftan hárgreiðsluna sína og eiga þá ósk heitasta að þurfa aldrei að kljást við dýpri spurningar en hvor hafi verið betri Duran Duran eða Wham!
Ég er að vísu einn af þeim og bíð spenntur eftir því að sjá Sylvester Stallone hnykla sextuga vöðvana í heimi sem Ronald Reagan hefur yfirgefið. Það læðist samt að manni sá ónotalegi grunur að það búi meira að baki þessari upprisu Rambó og Rocky en hugmyndafátækt og neikvæð staða á tékkareikningi Stallone.
Miami Vice gekk í endurnýjun lífdaga nýlega, stökkbreyttu ninja skjaldbökurnar eru væntanlegar í bíó og meira að segja Transformers, vinsæl leikföng frá níunda áratugunum, eru á leiðinni í risastórri Bruckheimer mynd á næsta ári. Við hljótum að vera að sigla inn í nýtt kalt stríð og verðum öll komin með ömurlega hárgreiðslu í enn ljótari föt að kyrja skelfilega slagara áður en yfir lýkur. Öðruvísi munum við ekki halda sönsum í heimi sem við vitum að ferst á morgun eða um leið og Stallone fer af vaktinni.
| 15:44 |