»  kvikmyndir  »  Sama sagan aftur og aftur
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Sama sagan aftur og aftur
Fimmtudagur, 21. desember 2006

Söguþráður ævintýramyndarinnar Eragon er glettilega keimlíkur fyrstu Stjörnustríðsmyndinni A New Hope. Í Eragon eignast ungur bóndastrákur dreka, öðlast um leið ofurkrafta og verður eina von þjakaðrar alþýðu um að hún losni undan oki ills konungs.

Reyndur uppgjafariddari úr gamalli reglu sem stóð vörð um réttlætið áður en hið illa náði yfirhöndinni tekur drenginn undir sinn verndarvæng og kennir honum að nota nýfenginn mátt sinn. Þar fyrir utan hafði vondi kallinn einu sinni verið í röðum góðu riddaranna áður en hann spilltist og útrýmdi þeim. Kunnuglegt?

Bóndastrákurinn Logi Geimgengill kynnist gamla riddaranum Obi-Wan, fær hjá honum geislasverð, lærir að nota Máttinn og verður eina von vetrarbrautarinnar um frelsi undan oki vonda keisarans sem beitir ilmenni fyrir sig sem hafði áður útrýmt öllum góðu riddurunum og réttlætisvörðunum að Obi-Wan undanskildum.

Höfundur Eragon verður þó seint sakaður um hreinan og kláran ritstuld þar sem þetta var ekki heldur nýtt þegar George Lucas gerði ævintýrum Geimgengilsins eftirminnileg skil. Báðar byggja myndirnar á þrautreyndri ævintýraformúlu sem hefur gert það gott frá örófi alda.

Báðar eru þessar myndir ágætar til síns brúks og kalla fram tilfinningaviðbrögð sem við viljum finna. Söguþráðurinn er svo rótgróinn í sameiginlegt minni hins vestræna heims, er svo kunnuglegur og notalegur að hann virðist alltaf finna hljómgrunn.

Vinsældir mynda sem byggja á ævintýra­formúlunni segja svo allt sem segja þarf um smekk hins almenna kvikmyndahúsagests og í raun er það tilgangslaust og fánýtt að væla yfir skorti á frumleika í Hollywood þegar sú formúla sem reynist jafnan best er miklu eldri en Draumaverksmiðjan og kvikmyndatökuvélin.
Fjöldinn fær það sem hann vill og það fer ekki á milli mála að efst á óskalistanum trónir sama sagan. Aftur og aftur.


| 12:14 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff