Föstudagur, 19. janúar 2007
Ísleifur B. Þórhallsson er einn af mínum skárri kunningjum í bíóbransanum en ég ætla samt að láta það eftir mér að ausa drenginn löngu tímabæru lofi sem hann á fyllilega inni fyrir.
Ég gæti rakið það sem Ísleifur hefur gert fyrir íslenska bíómenningu í löngu máli með því að telja upp allar þær kvikmyndahátíðir sem hann hefur staðið fyrir á undanförnum árum, nefnt allan þann fjölda þekktra leikara, leikstjóra og framleiðanda sem hann hefur fengið til landsins og leyft áhorfendum að komast í tæri við og síðast en ekki síst minnst á að sumir af þessum gestum hafa skotið hér rótum, sett svip sinn á íslenskt skemmtanalíf og komið landinu, íslenskum fatnaði, tónlist og öðru betur á kortið úti í hinum síminnkandi stóra heimi.
Allt þetta réttlætir fyllilega að drengurinn fái klapp á bakið en þarna leynast þó ekki ástæðurnar fyrir því að ég hugsa til hans með hlýhug þessa dagana. Ísleifur blés á dögunum nýju lífi í fyrirtæki sitt Græna ljósið og hefur sett sér það takmark að frumsýna í það minnsta eina „sjálfstæða mynd“ á tveggja vikna fresti. Og það sem er mest um vert þá eru ekki gerð hlé á sýningum Græna ljóssins.
Gallinn við íslenska bíómenningu er sá að það sem Ísleifur er að gera ætti að þykja svo sjálfsagt að það ætti ekki að þurfa að hafa orð á því og flestar þær myndir sem hann hefur sýnt á hátíðum og mun bjóða upp á hjá Græna ljósinu ættu með réttu að skila sér hratt og örugglega í almennar sýningar í íslenskum kvikmyndahúsum.
Íslenskur bíómarkaður og þá um leið íslenskir bíógestir er því miður svo vanþroska að það þarf enn sérstakar hátíðir með tilheyrandi húllumhæi eða sértækar aðgerðir til þess að koma myndum sem ekki eru löðrandi í Hollywoodslepju á framfæri.
Græna ljósið er því að taka að sér ákveðið uppeldishlutverk sem ætti með réttu að vera óþarft en verði viðbrögð bíógesta við næstu myndum sem boðið verður upp á í líkingu við vinsældir Little Miss Sunshine líður vart á löngu þar til hlutverk Græna ljóssins verður óþarft og það þykir sjálfsagt og þá um leið gróðvænlegt að koma jaðarmyndum beint í almennar sýningar. Þá má líka óska þess að sá íslenski plagsiður að gera hlé á sýningum mynda leggist að mestu af um leið. Á meðan ástandið er eins og það er má maður þakka fyrir menn eins og Ísleif sem nenna að eyða tíma og orku í að leiðrétta kúrsinn.
| 10:29 |