»  kvikmyndir  »  Kletturinn í drullupolli spillingarinnar
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Kletturinn í drullupolli spillingarinnar
Fimmtudagur, 01. febrúar 2007

Ţau ánćgjulegu tíđindi spurđust út í síđustu viku ađ Clive Owen hefđi veriđ ráđinn til ţess ađ leika einkaspćjarann Philip Marlowe. Bćđi er ţađ vitaskuld fagnađarefni ađ einhver skuli sjá ástćđu til ţess ađ kvikmynda einhvern af harđsođnu reyfurunum hans Raymonds Chandler á ţessum síđustu og verstu tímum og síđan spillir ekki fyrir ađ Owen skuli taka ađ sér hlutverkiđ enda getur ekki hver sem er sett upp hattinn hans Marlowe.

Sjálfsagt hefur enginn rithöfundur haft jafn mikil áhrif á einkaspćjarabransann og Chandler. Allt frá ţví hann lét Marlowe vađa spillinguna og skítinn í regnvotum skuggasundum Los Angeles í kringum 1940 hefur Marlowe veriđ hćsti samnefnarinn í öllum skáldskap og kvikmyndum ţar sem einkaspćjarar koma viđ sögu.

Marlowe var harđur en heiđarlegur, fór ekki endilega eftir lögunum en útdeildi sínu eigin réttlćti og ólíkt lagabókstafnum tók Marlowe tillit til tilfinninga og hafđi mannlega ţáttinn jafnan í hávegum.
Marlowe var líka gćddur ţeim eiginleika ađ hann gat stađist tálar varhugaverđra og kynósa kvenna sem vöfđu veikgeđja mönnum um fingur sér. Hann lét hvorki fyrirheit um kynlíf né hjónabandssćlu setja sig út af laginu. Hann stóđ einn og barđist gegn spillingunni, oft mengađur af henni, reiđur og bitur en aldrei spilltur.

Chandler sjálfur lýsti Marlowe einhverju sinni á ţann veg ađ hann gćti efalaust flekađ hertogafrú en hann myndi aldrei spjalla hreina mey. Hinn eini sanni riddari götunnar, í rykfrakka međ hatt og vopnađur skammbyssu.
Ţađ er ekki hverjum sem er gefiđ ađ túlka margbrotna persónu Marlowe og allir sem hafa spreytt sig á hlutverkinu hafa gert ţađ í skugga Humphrey Bogart en eftir ađ hann lék spćjarann í The Big Sleep áriđ 1946 hefur hann veriđ Marlowe. Bogart tók Marlowe ţó mjög blátt áfram og var ekkert ađ kafa ofan í persónuna. Talađi bara hratt međ sígarettu í munnvikinu og var flottastur.

Owen gćti fangađ hiđ mannlega í Marlowe ţó ég leyfi mér ađ efast um ađ hann muni nokkurn tíma stela persónunni frá Bogie. Hann er auđvitađ búinn ađ ná inntökuprófinu međ stćl međ túlkun sinni á Dwight McCarthy í Sin City en sú myndasögupersóna Franks Miller er í raun uppfćrđ útgáfa af Marlowe. Ţar fyrir utan er Owen leikari sem vex međ hverri mynd og nćgir í ţví sambandi ađ nefna Children of Men.

Ţađ er löngu kominn tími á ađ Marlowe snúi aftur og Owen er rétti mađurinn til ađ leika hann og fćra hann inn í nútímann. Ţađ er kominn tími á Marlowe og okkur veitir ekkert af alvöru hetju sem stendur upp úr drullupolli spillingar og međalmennsku 21. aldarinnar án ţess ađ brotna ţegar gusurnar ganga yfir.


| 10:12 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóđbönd

Taxi

Bloggar

Stöff