»  kvikmyndir  »  Þreyttur brandari
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Þreyttur brandari
Þriðjudagur, 08. maí 2007

Mr. Bean's Holiday
[1]

Breskt sjónvarpsgrín er það besta í heimi og framlag Rowans Atkinson til þess verður seint ofmetið, enda hefur hann komið víða við á löngum ferli. Hann hefur aldrei verið betri en í Blackadder á níunda áratugnum en tók síðar góða spretti í stuttum látbragðsþáttum um einfeldninginn Mr. Bean.

Bean býður hins vegar ekki upp á mikil tilþrif, enda mállaus persónan í meira lagi takmörkuð og þótt Atkinson sé fimur og geti sett upp kostulega svipi og grettur og fett sig á alla kanta standa slíkir taktar ekki undir áralöngu gríni og alls ekki heilli bíómynd.

Mr. Bean´s Holiday er önnur myndin í fullri lengd um ævintýri einfeldningsins á gula Mini-inum. Sú fyrri var slöpp en þessi er fyrst og fremst átakanlega ófyndin. Kjáninn vinnur að þessu sinni ferð til Cannes og honum tekst, þrátt fyrir endalaus skakkaföll, að komast á áfangastað og gera nokkurn usla á margrómaðri kvikmyndahátíð sem kennd er við borgina á frönsku Rívíerunni.

Handritið er lapþunnt, enda hefur sjálfsagt ekki þótt nein ástæða til að liggja um of yfir söguþræðinum þar sem allt gengur út á grettur og látbragð Atkinsons. Gallinn er bara sá að þetta hefur allt sést áður og myndin er í raun eins og samtíningur úr sjónvarpsþáttunum. Vinsældir persónunnar munu líka sjálfsagt tryggja að myndin skili aðstandendum sínum sæmilegum gróða en áhorfendur verða sviknir.

Mr. Bean getur í besta falli haldið gríninu gangandi í 5-10 mínútna sjónvarpsþáttum en meira að segja þar var grínið orðið lúið og að ætla að láta hann bera uppi heila bíómynd er galið. Hér er manni boðið upp á að sjá og heyra sama gamla brandarann aftur og aftur og eina ljósið í myrkrinu er hressilegt skens í lokin og voða krúttlegur endir. Annars er þetta sorglegt, bæði fyrir áhorfendur og leikarana sem eru allir eins og illa gerðir hlutir í moðsuðunni. Willem Dafoe nýtur mestrar samúðar, enda virðist hann þjást mest en hann og aðrir geta huggað sig við að börnin geta hlegið. Samt eiga þau miklu betra skilið.


| 1:13 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff