»  kvikmyndir  »   Toppmaður í vondri mynd
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Toppmaður í vondri mynd
Miðvikudagur, 25. mars 2009

Killshot
[2]

Ferill hins frábæra leikara Mickey Rourke hefur verið vægast sagt brokkgengur, aðallega vegna þess að hann hefur verið sjálfum sér verstur og kosið að sóa hæfileikum sínum í að súpa ýmsar beiskar fjörur lífsins frekar en sinna leiklistinni af raunverulegum metnaði. Það hefur því verið sérstaklega ánægjulegt fyrir trygga aðdáendur kappans að fylgjast með stórkostlegri upprisu hans sem segja má að hafi byrjað fyrir alvöru með meistaratöktum í Sin City árið 2005 og náð hámarki með The Wrestler í fyrra.

Rourke og The Wrestler hafa sópað að sér verðlaunum. Rourke bar þá mynd, að öðrum ólöstuðum, nánast uppi einn og óstuddur og var nánast í hverjum einasta ramma. Rourke ber Killshot líka uppi nánast einn og óstuddur en því miður fær hann úr svo litlu að moða að hann getur ekki með nokkru móti bjargað þessari stefnulausu grautargerð sem merkilegt nokk er byggð á glæpasögu eftir meistara Elmore Leonard.

Rourke er hér í hlutverki Blackbird, leigumorðingja, af indíánaættum. Sá drepur fyrir mafíunna af miklum metnaði og leggur höfuðáherslu á að skilja ekki eftir nein vitni af verkum sínum á lífi. Þessi árátta hans kemur honum í klandur þegar hann skýtur allsbera hjásvæfu mafíósa í hausinn og fær því litlar þakkir og enga greiðslu fyrir það sem átti að vera síðasta verkefni hans á ferlinum.

Skítblankur og með mafíuna á hælunum gerir hann þau fáránlegu mistök að taka siðblindan og grjótheimskan smákrimma, sem Joseph Gordon-Levitt leikur, undir sinn verndarvæng. Samstarf þessara tveggja ólíku glæpamanna er allt hið klaufalegasta þannig að þeir sitja allt í einu uppi með tvö vitni sem geta borið kennsl á Blackbird og verða því að deyja.

Þetta eru hjón sem eru við það að gefast upp á að bjarga mislukkuðu hjónabandi sínu leikin af Diane Lane og Tom Jane. Hjónakornin eru samt engir aular og láta hart mæta hörðu, berja frá sér og munda haglabyssur þegar þeim er ógnað. Þegar morðingjarnir hafa gert í það minnsta tvær misheppnaðar atlögur að tilveru fólksins ákveða yfirvöld að koma þeim fyrir í vitnavernd þar sem þau geta hafið nýtt líf, á nýjum stað með nýjum nöfnum þar til ófétin eru á bak við lás og slá. Þau taka þessu kostaboði enda fátt betra þegar hjónabandið er komið í þrot en að fá að byrja upp á nýtt, eða þannig sko. Blackbird er þó ekki á því að leyfa þeim að fóta sig í nýrri paradís og eltir þau uppi með morðóðan fábjánann í eftirdragi þar til alls konar uppgjör verða að lokum óumflýjanleg.

Það verður eiginlega bara að segjast hreint út að Killshot er langdregið, leiðinlegt og þvælt drasl en samt staðfestir hún að Rourke er í toppformi og virðist að þessu sinni vera kominn til að vera. Hann lyftir myndinni á æðra plan og tekur sig helvíti vel út með indíána meiköppið sitt og síða hárfléttuna. Diane Lane og Tom Jane gera einnig sitt besta en maður getur eiginlega ekki beðið eftir því að einhver, bara einhver setji kúlu í hausinn á Joseph Gordon-Levitt. Þá er hin þokkafulla Rosario Dawson þarna í gersamlega tilgangslausu hlutverki sem er hrein og klár móðgun við þessa hörkupíu sem fór einmitt hamförum í Sin City eins og sjálfur Rourke.

Elmore Leonard hefur skrifað ótrúlega haug af reyfurum sem margir hverjir hafa orðið að prýðilegum bíómyndum en hér duga hvorki hann né Rourke til að bjarga Killshot frá því að renna út í tóma leiðindasteypu. En kannski var ekki við öðru að búast frá leikstjóranum John Madden sem á einmitt vafasaman heiðurinn af, Shakespeare in Love, einni leiðinlegustu kvikmynd síðari tíma. Hér býður hann þó í það minnst upp á Rourke í fínu formi sem er vissulega huggun harmi gegn en fyrir þá sem eru ekki einarðir stuðningsmenn leikarans er þetta samt fullkomin tímasóun.


| 15:37 |
komment

Við eigum það eitt af fáu eða eftir því hvernig á er horft, sumsé sameiginlegt að vera hrifin af Rouke, Og þð eru ekki margir leikarar sem ég heillast af. Ég hef frá því hann kom fyrst fram verið mikill aðdáadi en síð'ari ár hef ég ekki fylgst með.
Hvað gerði kappinn, fór hann á snúru.... EÐA ER HANN VEL KVÆNTUR NÚNA. Tað skiptir meira máli en margur heldur, fyrir árangur og hamingju í lífinu ; líttu bara til sameiginlegra vina og ættingja.
Var í sambandi við eina sem ég þekki í gær og stóð hreint ekki á sama. Hugsaði til þín en beið með að hringja og geri enn.

Nr. 1 | Begga | 20.03.2010 | 8:16:56 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff