Miðvikudagur, 06. janúar 2010
Harry Brown
[3]
Lífið er frekar dapurlegt hjá ellilífeyrisþeganum Harry Brown sem á sínum yngri árum var vaskur sérsveitarmaður í breska hernum. Eiginkona hans liggur fyrir dauðanum og eini vinur hans er ofsóttur af ruddalegu unglingagengi sem heldur áður friðsælu hverfi Harrys í heljargreipum.
Skömmu eftir að eiginkonan skilur við tekur glæpagengið sig til og slátrar vini Harrys sem þá er nóg boðið. Hann verður sér úti um byssu og sýnir að hann hefur engu gleymt og rifjar upp gamla takta frá því hann barðist á Norður-Írlandi og víðar og gengur milli bols og höfuðs á skítalöbbunum sem hafa varpað skugga á tilveru hans.
Michael Caine var eitursvalur í glæpamyndinni Get Carter fyrir 39 árum síðan þar sem hann lék harðsnúinn gangster sem lúskraði á óþjóðalýð í leit að morðingja bróður síns. Og kallinn er engu minni töffari núna, 76 ára gamall, og þegar Harry sýnir hvað í honum býr er engu líkara en að Carter sjálfur sé upprisinn.
Caine ber þetta bráðskemmtilega og ofbeldisfulla hefndardrama á herðum sínum og það er unun að horfa á kallinn sveifla byssum og pynta illa uppdregin ungmenni af þeirri einurð og hörku sem Carter sýndi árið 1971.
Samanburður við Gran Tourino með Clint Eastwood er óhjákvæmilegur enda eiga myndirnar ýmislegt sameiginlegt fyrir utan það að í þeim báðum fara gamlir jaxlar á kostum. Harry Brown skortir samt nokkuð á þá mannlegu dýpt sem gerði Gran Tourino svo eftirminnilega en á móti kemur að Harry gerir allt það sem við vildum að Eastwood gerði í Gran Tourino. Hér er nefnilega ekkert verið að fara fínt í hlutina og Harry slær hvergi af í ofbeldi og fantaskap þannig að Harry Brown er alveg sérdeilis prýðilegt og fullnægjandi hefndardrama þótt hún sitji ekki jafn lengi í manni og Gran Tourino.
| 18:57 |