Þriðjudagur, 30. mars 2010
Kóngavegur
[4]
Á hjólhýsasvćđinu Kóngavegi hefur safnast saman skrautlegur hópur minnipokafólks sem virđist hafa lítđ fyrir stafni annađ en ađ bíđa ţess ađ missa endanlega vitiđ í fásinninu í sveitinni. Í búarnir viđ Kóngaveg eru líklega ágćtis ţverskurđur af ţví sem ţeir kalla “trailer trash” í Ameríku en fólkiđ ţarna er misvel gert. Sumir eru algjörir aumingjar og fábjánar á međan ađrir leyna á sér og eiga til reisn, samúđ og náungakćrleik.
Ţarna höfum viđ alkóhólíserađan og gjörsamlega misheppnađan tónlistarmann (Björn Hlynur Haraldsson) sem er á góđri leiđ međ ađ gera ólétta kćrustu sína (Nína Dögg Filippusdóttir) sturlađa. Ólafur Darri Ólafsson og Ólafur Egilsson eiga dásamlegan samleik í hlutverkum brćđra sem hafa engar spurnir haft af móđur sinni frá ţví í ćsku og sinna gangbrautarvörslu á Kóngavegi.
Sigurđur Sigurjónsson leikur Seníor, bissnissmann međ óhreint mjöl í pokahorninu, sem fer huldu höfđi á Kóngavegi ţangađ sem hann hefur dröslađ aldrađri móđur sinni (Kristbjörg Kjeld) og ungri kćrustu (Nanna Kristín Magnúsdóttir). Til ţess ađ flćkja líf ţessarar sjúku fjölskyldu enn meira dúkkar svo sonur Seníors (Gísli Örn Garđarsson), eftir ţriggja ára útlegđ, upp í fylgd međ ţýskum félaga sínum (Daniel Brühl) og vill endilega slá pabba sinn um lán upp á tvćr milljónir en ţeim ţýska virđist liggja sérstaklega á ađ fá peningana og setur pressu á Júníor. Ingvar E. Sigurđsson leikur svo eina manninn sem virđist hafa eitthvađ upp úr ţví ađ dvelja á Kóngavegi en sem einhvers konar stađarhaldari og leigubílstjóri tekst honum ađ plokka peninga af rćflunum sem hann leigir út hjólhýsin.
Sögur alls ţessa fólks fléttast svo saman međ ýmsum hćtti sem hvorki er pláss né sérstök ástćđa til ţess ađ rekja hér. Atburđarásin er bráđskemmtileg á köflum alveg kostuleg og leikhópurinn allur skilar klikkuđum persónum sínum svo áreynslulaust ađ myndin er léttleikandi og galsafengin án ţess ţó ađ harmrćnir undirtónarnir séu kaffćrđir.
Daniel Brühl mćtir hér ferskur til leiks úr Inglorious Basterds og samspil hans og Gísla Arnar er helvíti gott. Kristbjörg Kjeld og Ólafur Darri stela öllum senum sem ţau komast í og Nanna Kristín er alltaf jafn sjarmerandi og fyndin svona svo mađur tiltaki nokkra úr leikhópnum án ţess ađ halla sérstaklega á hin sem standa sig öll međ prýđi.
Ţetta er meira og minna sami hópurinn og stóđ ađ kvikmyndinni Sveitabrúđkaup og ţar sýndu ţau ađ ţau eru međ húmorinn í góđu lagi og hér gera ţau enn betur í fallegri og fyndinni mynd um tragikómíska tilveru fólks sem af ýmsum ástćđum hefur dćmst til dvalar viđ Kóngaveg.
| 21:02 |