»  kvikmyndir  »  Jedi-riddarar og geitur í Írak
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Jedi-riddarar og geitur í Írak
Þriðjudagur, 30. mars 2010

The Men Who Stare at Goats
[3]


Hún lætur ekki mikið yfir sér þessi fáránlega vel mannaða og sniðuga gamanmynd þannig að einhvern veginn sér maður fyrir sér að hún muni ekki ná þeirri lýðhylli sem hún á svo sannarlega skilið. Þar fyrir utan er sýrður en mjög svo lýsandi titill hennar sjálfsagt líklegri til þess að fæla fólk frá myndinni heldur en hitt.

Auðvitað segir það sig samt sjálft að mynd sem skartar George Clooney, Jeff Bridges, Kevin Spacey og Ewan McGregor getur varla klikkað. Clooney og Bridges eru í algeru toppformi, Spacey gefur þeim lítið eftir og McGregor smellpassar í hlutverk sakleysislegs blaðamanns sem reynir að finna lífi sínu og starfi tilgang eftir að kærastan hans fer frá honum til þess að hefja nýtt líf með einhenta ritstjóranum hans.

Blaðamaðurinn bláeygi fer til Íraks þar sem hann ætlar að skrifa eitthvað alveg magnað um stríðið þar í landi. Á meðan hann býður eftir því að komast inn í stríðshrjáð landið hittir hann hinn mjög svo kúnstuga Lyn Cassady sem Clooney leikur með látlausum tilþrifum en í persónunni mætast sú svala karlmennska sem Clonney á svo auðvelt með að holdgera og sú afbygging á þeirri sömu karlmennsku sem Clooney bauð upp á í Burn After Reading þeirra Coen-bræðra.

Lyn þessi heldur því fram að hann sé í leynilegum erindagjörðum á vegum bandaríska hersins og upplýsir blaðamanninn um að hann sé meðlimur í sérsveit sem nefnist Jedi Warriors sem ætlað sé að boða frið og berjist ekki með vopnum heldur hugarorkunni. Blaðamaðurinn sér frétt í þessum undarlega hermanni og ákveður að slást í för og með samtölum þeirra fáum við svo að kynnast Bill Django, heilanum á bak við friðsömu hermennina. Jeff Bridges fer á sínum alkunnu kostum í hlutverki Django sem verður fyrir áfalli í Víetnam og byrjar eftir það að leita leiða til þess að friðvæa herinn. Hann hangir árum saman með alls konar hippalýð og blómabörnum og dettur svo miður á Jedi-lausnina og kjaftar sig inn á herforingja sem leyfa honum að mynda hersveit hugarorkuriddara.

Þar var Lyn fremstur meðal jafningja þar til deildin var leyst upp en hann hefur engu gleymt, eða kannski öllu, það er ekki gott að segja en þeir félagar þurfa að yfirstíga ýmsar hindranir á leið sinni að uppgjöri við fortíðina og yfirbót manns sem drap geit með því að horfa á hana.


| 21:04 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff