Miðvikudagur, 17. mars 2010
Shutter Island
[4]
Árið er 1954. Á hinni einangruðu Shutter eyju er rekið öryggisgeðsjúkrahús fyrir snældubilaða og óforbetranlega ofbeldisfauta og morðingja. Þegar einn vistmannanna hverfur sporlaust er Alríkislögreglan kölluð til og á staðinn mæta tveir vaskir lögreglumenn, Teddy og Chuck, sem Leonardo DiCaprio og Mark Ruffalo leika.
Stormur er í aðsigi þannig að allt útlit er fyrir að lögreglumennirnir verði veðurtepptir á þessum undarlega stað þar sem starfsfólkið er eiginlega skuggalegra en vistmennirnir.
Þrúgandi andrúmsloft einangrunnar og annarleika hvílir yfir hælinu og sturlunin sem svífur yfir vötnum er svo þrúgandi að ekki líður á löngu þar til aðalhetjan okkar, hann Teddy, fer að efast um geðheilsu sína og hálfgert ofsóknaræði rennur á hann þegar hann áttar sig á því að hann er genginn í gildru geðlæknanna, sem stunda hryllilegar tilraunir á sjúklingum sínum, og á vart afturkvæmt.
Leonardo DiCaprio er öflugur leikari sem gerir Teddy stórfín skil en þessi glöggi lögreglumaður er með allskyns beinagrindur í farteskinu og því veikur fyrir þegar hann er kominn á þennan sjúka stað sem er tíu sinnum verri en Gaukshreiðrið. Hann syrgir enn eiginkonu sína sem brann inni eftir að brennuvargur kveikti í heimili þeirra og minningar úr stríðinu sækja á hann en hann var í hópi bandarsískra hermanna sem frelsuðu gyðinga úr útrýmingarbúðum nasista. Það er ekki nóg með að Teddy sjái samsvörun milli læknanna og hrottanna sem dunduðu sér við að murka lífið úr gyðingum í Dachau heldur er hann fyrst og fremst kominn til þess að finna manninn sem hann telur bera ábyrgð á dauða konu sinnar og mun vera vistaður með leynd á eyjunni.
Martin Scorsese er besti kvikmyndaleikstjóri í heimi. Um það þarf ekkert að þræta sérstaklega og í þessari mynd sýnir hann alls konar meistaratakta og eflist með hverjum ramma sem færir Teddy fjær raunveruleikanun og nær botlausri geðbilun. Áhorfandinn sogast því óhjákvæmilega inni í furðuheim hælisins, sundlar á köflumn af gamalreyndum leikfimiæfingum með tökuvélina sem skekkja sýn hans og Teddy á raunveruleikann þannig að það er ekki hægt að segja annað en að maður þjáist með Teddy greyinu.
Scorsese stýrir hér frábærum hópi leikara með nýja óskabarnið sitt, DiCaprio, í fararbroddi. Ben Kingsley, Max Von Sydow og Ted Levine klikka ekki og hinn sorglega sjaldséði Mark Ruffalo er flottur að vanda.
Plottið er eiginlega eini veikleiki myndarinnar þar sem framvindan er nokkuð dæmigerð fyrir myndir um fólk sem telur sig vera að missa vitið og endirinn er sorglega fyrirsjáanlegur þótt leiðin að honum sé heilmikil veisla fyrir augað. Scorsese er því í miklu stuði á Shutter eyju þótt hann hafi oft verið miklu betri.
Fréttablaðið
| 13:57 |