Þriðjudagur, 27. apríl 2010
Black Dynamite
[3]
Í kringum 1970 gerđist fólk af afrískum uppruna frekt til fjörsins í Hollywood og í kjölfariđ spratt upp ansi hreint skemmtileg kvikmyndagrein sem kennd er viđ “blaxploitation”. Myndir eyrnamerktar hugtakinu skörtuđu hörundsdökkum leikurum í öllum helstu hlutverkum auk ţess sem tónlist, talsmáti og flest annađ var sótt beint í menningarheim afrískćttađra ameríkana.
Ţeldökku diskókempurnar voru ćgilegir töffarar sem stóđu flestum bleiknefja bíóhetjum framar.
Ţeir voru harđari, betri elskugar, rifu kjaft helmingi hrađar og slógust og munduđu frethólka sem ofurmenni vćru.
Ţekktasti “blaxploitation” kappinn er ofurlöggann Shaft sem fór mikinn í síđa leđurjakkanum sínum og gekk milli bols og höfuđs rumpulýđs, í nokkrum myndum, allt frá Harlem til Afríku. Í Black Dynamite er brugđiđ hressilega á leik og gömlu “blaxploitation” myndunum er sunginn fyndinn óđur um leiđ og góđlátlegt grín er gert ađ kvikmyndagreininni.
Black Dynamite er einhver sá ćgilegasti harđhaus sem sögur fara af. Hann er skjótari en skugginn ađ skjóta eđa lemja menn í spađ, getur fullnćgt heilu kvennabúri í einni lotu og er mikill kung-fu meistari. Hann er líka fyrrverandi CIA mađur en virđist helst hafa í sig og á međ handrukkunum ţegar hér er komiđ viđ sögu.
Ţegar bróđir hans er drepinn hrekkur kallinn í gamla gírinn, fćr aftur leyfi frá CIA til ađ drepa og hreinsar til í undirheimunum um leiđ og hann sópar öllu dópi af götunum. Allt er ţetta gert međ ćgilegum ýkjum og yfirgengilegum töffaraskap og á slíkum hrađa ađ varla finnst dauđur punktur í myndinni sem er ţar fyrir utan ansi hreint fyndin.
Undir ţessum ósköpum dunar geggjuđ tónlist áttunda áratugarins og myndin er öll löđrandi í dásamlegri “seventís” stemningu međ tilheyrandi klikkuđum hárgreiđslum, rúllukragapeysum, berbrjósta píum og mögnuđum leđurjökkum.
Mađur getur eiginlega ekki beđiđ um mikiđ meira og ég er illa svikinn ef ţessi mynd kveikir ekki löngun hjá einhverjum eftir ţví ađ finna gömlu Shaft-myndirnar međ Richard Roundtree og elta Pam Grier og fleira gott fólk uppi á međan ţau voru í toppformi.
| 9:19 |