»  kvikmyndir  »  Rakkarapakk og ruslalýður
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Rakkarapakk og ruslalýður
Laugardagur, 24. apríl 2010

Trash Humpers

Ef leikstjórarnir John Waters, Lars Von Trier, Peter Greenaway og David Lynch tækju sig til á sýrutrippi og gerðu saman bíómynd myndu þeir varla ná að toppa Trash Humpers í sjúkleika, perversjónum og rugli.

Hér þvælist ógeðslegt pakk stefnulaust um og lætur eins og skepnur enda er hyskið svo ófrýnilegt að maður gæti einna helst haldið að úrkynjuð fjölskylda þeirra Plutos og Jupiters úr The Hills Have Eyes sé flutt á mölina.

Nú er Fréttablaðið svo siðprútt og borgaralegt blað að það er ekki með góðu móti hægt að útlista í smáatriðum hvað skríllinn tekur sér fyrir hendur en helsta dægradvöl hans er að brjóta og bramla híbýli og heimilistæki með tilheyrandi spangólum og hlátrasköllum en forvitnilegust hlýtur samt að vera árátta karlpeningsins til að riðlast á ruslatunnum og -gámum þegar náttúran segir til sín.

Myndin hefur á sér hráan heimildarmyndabrag enda lítur út fyrir að djöfulgangurinn sé tekinn upp á nokkuð gamla myndbandsupptökuvél.
Ruslaperrarnir virðast þó ekki alveg skyni skroppnir þar sem þeir eiga það til að bresta í ljóðaupplestur og setja á svið stutta harmleiki með sokkabrúðum svo eitthvað sé nefnt.

Trash Humpers er æði sérkennilegt furðuverk og ekki blasir nú beinlínis við hver tilgangur myndarinnar er eða hvaða sýn höfundurinn lagði upp með.

Harmony Korine ku hins vegar hafa samið texta fyrir hana Björk okkar og getur því varla verið ídjót. Enda má, ef vel er að gáð, greina einhverja hugsun og ádeilu í glórulausum þvættingnum og yfirgengilegu bullinu. Það verður til að mynda ekki tekið af þessu villifólki að það er laust undan oki siðmenningarinnar og ef til vill á það ekkert meira bágt en við hin sem riðlumst á rusli í gegnum lífið í óeiginlegri merkingu.

Þetta er því að einhverju leyti forvitnilegt verk en til þess að nenna að horfa á myndina þarf maður annaðhvort að hafa ríka löngum til þess að láta hneykslast, hafa mátulega sjúkan húmor til þess að geta hlegið að þessu eða hafa einbeittan áhuga á ömurlegustu kimum mannlegrar tilveru.

Trash Humpers er slíkt jaðarfyrirbæri að það er eiginlega ekki viðeigandi að gefa henni stjörnur. Hún fær því enga stjörnu sem þýðir þó alls ekki að hún fái núll stjörnur.


| 1:18 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff