»  kvikmyndir  »  Rauða lónið
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Rauða lónið
Föstudagur, 23. apríl 2010

The Cove
[3]

Íslendingar ættu að geta fundið einhverja huggun í því á þessum síðustu og verstu tímum í samskiptasögu þjóðarinnar við umheiminn að umhverfisverndarfólki finnst Japanir vera enn verri skúrkar en mörlandinn þegar kemur að hvaladrápum.

Samkvæmt þessari mjög svo áhugaverðu heimildarmynd drepa Japanir 23.000 höfrunga á ári hverju og reyna svo að troða kvikailfursmenguðu kjötinu ofan í skólabörn og ég veit ekki hvað og hvað.

Þessi annars snjalla þjóð í landi hinnar rísandi sólar er semsagt aðalskúrkurinn í The Cove en aðalhetjan er höfrungaþjálfarinn fyrrverandi Richard O'Barry. Á árum áður auðgaðist hann á því að veiða og þjálfa þessar undurfögru skepnur til þess að skemmta mannfólkinu. Hann þjálfaði meðal annars fimm höfrunga sem léku krúttið Flipper í samnefndri kvikmynd en þegar einn aðalleikarinn dó í örmum hans má segja að Richard hafi fengið vitrun og síðan þá hefur hann helgað líf sitt björgun höfrunga.

Hann hefur ekki tölu á hversu oft hann hefur verið handtekinn við að leysa höfrunga úr prísund og hér er sagt frá tilraunum hans til þess að vekja athygli á og stöðva villimannsleg höfrungadráp Japana. Í bænum Taiji er gert út á höfrunga í miklum mæli. Þeim er smalað inn í vík þar sem fulltrúar sædýragarða koma og kaupa flottustu dýrin. Hinum er ruslað saman í leynivík þar sem þeim er slátrað þar til sjórinn verður rauður af blóði.

Vondu veiðimennirnir hafa nú ekki viljað gangast við því að þeir séu að gera eitthvað rangt í víkinni og þeir gæta þess því vel að óviðkomandi séu ekki að þvælast í kringum blóðpollinn.
Richard lifir í þeirri trú að óhæfuverkin verði ekki stöðvuð nema athygli umheimsins verði vakin á þeim og þessi kvikmynd er gerð í þeim tilgangi. Hér er fylgst með honum og einvala liði kafara og kvikmyndagerðarfólks sem kemur fyrir földum myndavélum í vík dauðans og festir þannig slátrunina á filmu.

Myndin breytist á köflum í spennumynd á meðan góða fólkið kemur búnaði sínum fyrir í skjóli myrkurs, alveg á tánum þar sem vondir Japanir leynast við hvert fótmál. Hápunkturinn er svo vitaskuld þegar afraksturinn er sýndur. Þá getur fólk tárast, kúgast og fyllst heilagri reiði yfir djöfulganginum í blóðrauðum sjónum.

Þessir áhrifamestu hlutar myndarinnar eru þó ansi stuttir og milku púðri er eytt í viðtöl og innslög sem undirbyggja illsku Japananna og afhjúpa mafíutakta þeirra í höfrungaiðnaðinum. Þetta dregur aðeins úr slagkrafti annars mjög svo dramatískrar og tímabærrar hugvekju um hvernig kóróna sköpunarverksins leyfir sér að koma fram við þessi bráðgáfuðu og brosmildu sjávardýr.


| 23:31 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff