»  kvikmyndir  »  Þrívíð goðgá
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Þrívíð goðgá
Þriðjudagur, 13. apríl 2010

Clash of the Titans
[2]

Goðheimur þeirra Forngrikkja er ofboðslega heillandi ef ekki hreinlega ómótstæðilegur þar sem breyskir guðir og mennskir tilbiðjendur þeirra eru í endalausu brölti og árekstrum í safaríkum og hressandi sögum. Grísku guðirnir, með Seif sjálfan í broddi fylkingar, aðhylltust miklu meiri “hands on management” eins og þeir segja í útlandinu en sá Guð sem vesturlandabúar kjósa að tilbiðja þessi misserin.

Olympsguðirnir voru meira eða minna með annan fótinn í mannheimum, ýmist til þess að svala fýsnum sínum eða leika sér að mönnunum eins og peðum á flottasta taflborði sem sögur fara af.

Seifur var mikið fyrir að dreifa guðlegu sæði sínu á milli dauðlegra lenda og átti því alls kyns hálfguðleg afkvæmi út um allar koppagrundir. Í Clash of the Titans segir af einum slíkum, Perseifi, sem er guð í aðra ættina en maður í hina. Þessi dagfarsprúði fiskimaður æsist allur upp þegar undirheimaguðinn Hades, bróðir Seifs, kostar fósturfjölskyldu hans lífið og ætlar sér barasta að drepa þennan frænda sinn. Hvorki meira né minna.

Bægslagangurinn í Hadesi er bein afleiðing þess að mennirnir hafa ofmetnast svo svakalega að þeir hafa sagt goðunum stríð á hendur. Seifur, skapari þeirra, hefur leyft óþekktarormunum sínum að komast upp með derringinn þar sem hann þrífst á ást þeirra. Hinn bitri bróðir hans, Hades, nærist hins vegar á ótta mannanna og er því meira fyrir að refsa hyskinu með því að siga á það forynjum þannig að íbúar borgarinnar Argosar bíða með hjartað í brókunum eftir að títaninum Kraken verði sleppt lausum. Kraken þessi er forynja ógurleg sem líkist einhverju sem Godzilla gæti breyst í ef hún dytti í sterapott og fengi síðan 5 tonn af amfetamíni eftir á.

Eyðileggingarkrafturinn er semsagt svakalegur. Og viti menn! Enginn getur mögulega stöðvað skrímslið nema hálfguðinn Perseifur sem ætlar að vinna allar sínar hetjudáðir sem maður þar sem hann hafnar guðlegum uppruna sínum.

Ég ætla að vona að fleiri en þeir sem hafa lokið þriðja bekk í MR viti að Perseifur er þekktastur fyrir að hafa afhöfðað hina rosalegu gellu Medúsu sem skipti út fögrum hárlokkum sínum fyrir sturlað snákager og breytti öllum karlmönnum sem horfðu í augu hennar í stein. Vonandi er því óhætt að upplýsa að hausinn á Medúsu er mikilvægur í þessu öllu saman og áður en Perseifur getur mætt Kraken verður hann að hitta Medúsu en horfa samt fram hjá henni.

Allt lítur þetta örugglega ágætlega út á prenti en því miður er því nú þannig farið í tilfelli Clash of the Titans er hinn magnaði goðaheimur skemmtilegri í bókum. Efniviðurinn er skotheldur en myndin rambar því miður lengst af á barmi leiðinda. Þetta er illa skrifað og ótrúlegt nokk líka langdregið bull. Samt er engu til sparað og því má segja að um stórmynd sé að ræða en voðalega er illa farið með peninginn. Þrívíddar tæknibrellurnar eru ekki einu sinni flottar og ná engan vegin að breiða yfir hallærislegheitin í samtölum og söguþræði.

Þeir sem hafa séð myndina 300, bara svo dæmi sé tekið, um baráttu Spartverja við Persa í Laugaskörðum vita að þessi sögutími býður upp á svakalegan töffaraskap. Þetta skilar sér varla hér fyrir utan framlag danska töffarans Mads Mikkelsen sem ber eiginlega allt töff myndarinnar á herðum sér í hlutverki hermanns sem hefði betur drepist með Leonídasi og hans 300 köppum. Ralph Fiennes er líka flottur Hades enda sjóaður í þessu eftir að hafa leikið þann sem ekki má nefna í Harry Potter myndunum. Sá góði maður Liam Neeson er sorglega hallærislegur og Jedi-riddaralegur í hlutverki Seifs og Sam Worthington, sem virðist vera aðalgæinn um þessar mundir eftir Terminator 4 og Avatar, er rétt yfir meðallagi.

Þetta er samt ekki alglatað og Medúsa er nú alltaf soldið sexí og loksins þegar hún hefur skotið upp sínum skæða skrattakolli hressist myndin nokkuð og við dembum okkur í hressilegt en alveg ofboðslega dæmigert lokauppgjör sem hefði verið frábært 3 bíó fyrir fjörutíu árum en gerir lítið fyrir bíógesti dagsins í dag.


| 13:50 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff