»  kvikmyndir  »  Vanir menn á villigötum
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Vanir menn á villigötum
Mánudagur, 10. maí 2010

Cop Out
[2]

Kevin Smith er fyndinn náungi og skemmtilegur leikstjóri. Myndir eins og Dogma, Chasing Amy, Mallrats og Clerks eru nokkur dæmi um að Smith er með húmorinn í lagi. Honum fer líka best að leikstýra myndum sem hann hefur sjálfur skrifað og því er ekki gott að átta sig á hvað fékk hann til þess að leikstýra Cop Out þar sem hún er hvorki gerð eftir handriti hans né grunnhugmynd.

Smith bregst því bogalistinn illilega að þessu sinni þótt hann hafi yfir ágætis leikurum að ráða. Handritið er bara of þvælt, ómarkvisst og engan veginn nógu fyndið. Þetta skolast svo allt til í höndunum á Smith sem fer stefnulaust út um víðan völl.

Jimmy (Bruce Willis) og Paul (Tracy Morgan) hafa verið félagar í löggunni í New York í níu ár. Þeir vinna ágætlega saman þótt þeir séu ólíkir. Jimmy er mátulega pirraður og lokaður á meðan Paul er málóður trúður. Báðir eru þeir þjakaðir af vandamálum í einkalífinu þar sem Jimmy hefur ekki efni á að borga fyrir brúðkaup dóttur sinnar og Paul er viss um að konan sín haldi fram hjá sér.

Til þess að gera stöðu þeirra enn verri er þeim vikið frá störfum í mánuð án launa eftir að þeir klúrða handtöku á dópsala. Jimmy bregður þá á það ráð að selja sjaldgæft og forláta hafnarboltaspjald, sem hann erfði eftir föður sinn, til þess að fjármagna brúðkaupið. Spjaldinu er stolið áður en honum tekst að koma því í verð og það endar í höndum umfangsmikils glæpaforingja og fíkniefnasala.

Þeir félagar ráðast því til atlögu við óþjóðalýðinn og kynnast í leiðinni gullfallegri þokkadís frá Mexíkó sem ribbaldarnir eru á hælunum á og þreytandi innbrotsþjófi og brimbrettagæja sem Seann William Scott leikur eins og honum einum er lagið.

Það er semsagt meira en nóg að gerast í Cop Out en þar sem þræðirnir eru ekki fléttaðir nógu þétt saman finnst manni maður stundum þjást af athyglisbresti og áttar sig ekki alltaf hvert er verið að fara með þessu öllu saman. Myndin er þó sem betur fer stundum fyndin, aðallega þegar William Scott mætir, en Morgan sem á að vera brandarakallinn er ansi brokkgengur.

Einhver spenna næst líka upp á köflum en því miður er þetta allt saman svo klisjukennt að hasarinn lognast einhvern veginn út af.. Bruce Willis stendur þó vitaskuld fyrir sínu, þannig lagað, enda gæti hann leikið svona löggu blindandi. Hann bjargar þó litlu að þessu sinni og er stundum eins og álfur út úr hól.


| 1:39 |

First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff