»  kvikmyndir  »  Fyrsta flokks lið fellur um deild
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Fyrsta flokks lið fellur um deild
Þriðjudagur, 22. júní 2010

The A-Team
[3]

Sjónvarpsþættirnir um úrvalsmálaliðana í The A-Team nutu talsverðra vinsælda á níunda áratug síðustu aldar en á Íslandi tengja sjálfsagt flestir þættina við vöðvatröllið Mr. T sem fór mikinn í þáttunum með hanakamb og skrítið skegg. Hann er annars frægastur fyrir að hafa lamið Stallone í kássu í Rocky III.

Þessir fornfrægu sjónvarpsþættir hafa nú öðlast framhaldslíf í bíó í þessarri þvottekta sumarmynd þar sem ekkert vantar upp á fjör, sprengingar og hasar en því miður eru herlegheitin hálf sálarlaus og myndina vantar alveg neistann sem skilur frábærar hasarmyndir frá miðjumoði og meðalmennsku.

Sá góði maður og fíni leikari Liam Neeson fer fyrir A-liðinu í hlutverki hins eitilharða Hannibals. Þessi margrómaða fjögurra manna herdeild lendir, eftir um það bil áttatíu vel heppnaða leiðangra, í bölvuðu rugli þegar vondir CIA-menn og gráðugir einkahermenn svíkja strákana okkar og klína á þá upplognum sökum. Þeim er þá vísað úr hernum með skít og skömm og stungið í steininn. Ekkert fangelsi er þó nógu ramgert til þess að halda honum Hannibal sem er kominn á stjá fljótlega og smalar sínum mönnum saman í frækilegan hefndarleiðangur.

Svo óheppilega vill til að rauði þráðurinn hér er nánast nákvæmlega sá sami og í The Losers sem gengur einnig í kvikmyndahúsum þessa dagana. Þetta er hálf vandræðalegt og í raun skilur fátt annað þessar myndir að nema að leikararnir eru almennt betri í The A-Team og sjálfsagt hefur eitthvað fleiri milljónum dollara verið eytt í þær flugeldasýningar sem hér eru í boði.

Liam Neeson skilar sínu með prýði eins og við var að búast og ljær myndinni um leið ákveðinn virðuleika. Bara vegna þess að hann er svo flottur. Restin af genginu er alveg nógu svöl og sjarmerandi til þess að maður nenni að fylgja þessum gaurum alla leið til enda þessarar innantómu og fyrirsjáanlegu baráttu A-liðsins við að hreinsa nafn sitt og öðlast fyrri virðingarsess innan hersins.

Myndin er löng en ekki langdregin en samt ekki nógu öflug til þess að maður hrífist með og gleymi stund og stað. Þá vantar alveg alvöru hápunkta með tilheyrandi gæsahúð og endirinn er grútmáttlaus og í lausu lofti og felur í sér að nái þessi mynd að græða nóg verði komið framhald innan skamms.


| 15:19 |

First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff