»  kvikmyndir  »  Geđklofin unglingauppreisn
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Geđklofin unglingauppreisn
Miðvikudagur, 09. júní 2010

Youth in Revolt
[3]

Nick Twisp er ósköp venjulegur sextán ára unglingur sem hefur, eins og eđlilegt er, ţungar áhyggjur af ţví ađ hann muni deyja hreinn sveinn. Hann hefur fátt til ţess ađ bera til ţess ađ ganga í augun á hinu kyninu og gerir sér ţví litlar vonir um ađ losna viđ sveindóminn.

Tilvera hans er í ofanálag frekar dapurleg ţar sem móđir hans er dćmigerđur fulltrúi hvíta ruslsins í bandarísku samfélagi og leggur lag sitt viđ grjótheimskan og ómerkilegan vörubílstjóra sem er síst til ţess fallinn ađ leiđbeina unglingnum um refilstigu lífsins.

Ţegar Nick kolfellur fyrir hinni bráđhuggulegu Sheeni Saunders ćsast leikar heldur betur. Stúlkan er ljóđelsk og pćld en illu heilli međ sjúklegan áhuga á öllu ţví sem franskt er og ţá ekki síst svölum og slćmum strákum sem vađa óstöđvandi áfram innblásnir heilögum anda Jean Paul Belmondo.

Í örvćntingu sinni og ţrá eftir ađ komast milli lćra Sheeni býr Nick sér til hliđarsjálfiđ Francois Dillinger, kaldan karl sem tjáir sig aldrei án ţess ađ sveifla logandi sígarettu og er óhrćddur viđ ađ taka áhćttu. Til ţess ađ geta veriđ í nálćgđ viđ stóru ástina og koma um leiđ í veg fyrir ađ hún leggist međ vöđvastćltu og snoppufríđu ljóđskáldi ţarf Nick ađ búa svo um hnútana ađ móđir hans hendi honum ađ heiman og sendi hann til föđur hans sem er orđinn nágranni Sheeni.

Ţetta gengur allt eftir ţegar Nick, dyggilega studdur af Francois, veldur milljónatjóni međ ţví ađ sprengja kaffihús međ logandi bíl og hjólhýsi. Hryđjuverkiđ dugir honum ţó ekki til ađ vinna ástir Sheeni og ţví tekur viđ ansi litskrúđug barátta ţar sem kleyfhuginn Nick lćtur einskis ófreistađ ţegar syrtir í álinn og Francois tekur völdin.

Youth in Revolt er sniđug og fyndin mynd en samhengislaus og reikul ţar sem vandrćđalegum og kómískum uppákomum er slengt saman án mikillar fyrirhafnar. Sjálfsagt hefur ekki ţótt ástćđa til ađ ţaulhugsa söguna ţar sem augljóst er ađ hinum bráđskemmtilega, unga leikara Michael Cera er ćtlađ ađ bera myndina uppi. Og ţađ gerir hann ágćtlega blessađur og fćr ađ sýna hvađ í honum býr ţegar hann leikur Dillinger á móti sjálfum sér í hlutverki Nicks.

Ţá er samleikur Cera og Portia Doubleday stórfínn og stúlkan sú kemur sterk til leiks. Ţau njóta svo stuđnings frábćrra aukaleikara á borđ viđ Steve Buschemi, Zach Galifianakis, Ray Liotta, Fred Willard, Jean Smart ađ ógleymdun hinum gamalreynda meistara M. Emmet Walsh.

Ţetta liđ klikkar ekki og gerir sitt til ađ lyfta stemningunni í einfaldri og krúttlegri unglingaástarsögu sem Cera ber nokkuđ léttilega á herđum sér.


| 10:43 |

First Aid

Mjölfiđlar

Bloggar

shit and stuff