»  kvikmyndir  »  Ósigrandi minnipokamenn
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Ósigrandi minnipokamenn
Föstudagur, 18. júní 2010

The Losers
[3]

The Losers er hrá, sveitt og á köflum alveg hreint ferlega töff hasarmynd. Gallalaus er hún þó ekki og líður einna helst fyrir lapþunnt handrit, frekar slappa og klysjukennda sögu og leikarahóp sem er vægast sagt misgóður.

Myndin rís hins vegar undir göllunum, aðallega vegna þess að hún tekur sig aldrei alvarlega og þykist ekki vera neitt annað en það sem hún nákvæmlega er. Spenumynd með sprengingum, byssubardögum og slagsmálum og þeir sem fara sjálfviljugir á myndir eins og The Losers eru að sækjast eftir einmitt þessu án þess að hafa of miklar áhyggjur af umgjörðinni eða vitrænni framvindu sögunnar.

The Losers er byggð á samnefndri myndasögu um harðsnúna sérsveit hermanna sem tekur að sér ýmis vafasöm leyniverkefni en segir CIA stríð á hendur eftir að stofnunin snýst gegn þessum vösku útsendurum sínum.

Í bíó er nánast það sama í gangi. Voðalega vondur og dularfullur skúrkur, Max að nafni, sendir lúserana í drápsferð á vægast sagt vafasömum forsendum og ætlar sér svo að kála þeim þegar þeir hafa lokið verki sínu. Okkar menn sleppa þó með skrekkinn en eru taldir af en til þess að bæta gráu ofan á svart sitja þeir fastir í Bólivíu, félitlir og ráðalausir, en láta sig dreyma um að komast aftur heim til Bandaríkjann og jafna metin við Max.

Skýtur þá upp kollinum ferlega flott hasargella með fullar hendur fjár sem vill endilega flytja þá heim og fjármagna draum þeirra um að drepa Max. Þá byrjar fjörið fyrir alvöru. Lúserarnir, sem eru einhvers konar sambland af genginu og Mission Impossible og 12 ruddum, nota tölvutækni og vélbyssur til þess að klekkja á Max. En auðvitað er víða setið á svikráðum og engum treystandi.

Jeffrey Dean Morgan leikur foringja lúserana og er jafn stirður, ótöff og ósannfærandi og hann var frábær í hlutverki Grínistans í The Watchmen. Hinn jafnan ofmetni leikari Jason Patric mætir nokkuð öflugur til leiks í hlutverki Max þar sem hann skammast sín ekkert fyrir að ofleika ýktan skúrkinn. Chris Evans er skemmtilegasti leikarinn í hópi lúserana og sýnir fín tilþrif í gríninu en að öðru leyti á Zoe Saldana (Avatar, Star Trek) þess mynd skuldlaust. Hún fer hamförum í hlutverki ofurskutlunnar Aisha sem er jafningi lúseranna í vopnaburði og slagsmálum en auðvitað miklu kynþokkafyllri.

Bardagagatriðin eru flest fín þar sem mikið er gert út á hraðar klippingar og það eru fyrst og fremst töffarastælar með tökuvélina sem lyfta myndinni. Til dæmis er óborganlegt að sjá glitta í rassinn á Saldana í fljúgandi spegilbroti í miðri byssukúluhríð. Ógleymanlegt atriði í mynd sem líður annars fljótt úr minni.


| 15:18 |

First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff